Sjómenn freista þess að landa kjarasamningi án verkfallsaðgerða. En þetta birtist á mbl.is í morgun.
�??Við erum að hittast og að reyna að þoka þessu áfram,�?? sagði Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannafélags Íslands, spurður um gang mála í kjaraviðræðum sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi í gær.
�??�?að er hreyfing á viðræðunum en ég get svo sem ekki sagt meira en það. Við höfum verið að talast við frá páskum og höldum því áfram á meðan von er um að ná saman án átaka.�??
Kjarasamningar um 5.000 sjómanna hafa verið lausir frá árinu 2011, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag og kjaradeilan formlega verið á borði ríkissáttasemjara frá 2012. Samþykkt var á fundi samninganefndar sjómanna í febrúar að hefja undirbúning verkfallsaðgerða.