Smáhýsi í Dalnum - Ekki varanlegt jarðrask og tímabundið leyfi
Á þarsíðasta fundi umhverfis-og skipulagsráð var tekin sú ákvörðun að Glamping svæði verði fundinn staður á tjaldsvæði Vestmannaeyjabæjar norðan við þjónustumiðstöð í Herjólfsdal. Var sú ákvörðun tekin eftir að Alta ehf. skipulagsráðgjafar höfðu gert kostamat, auk þess sem fundað hafði verið með íbúum í nálægð við tjaldsvæði á íþróttasvæði.
Í ljósi þess samþykkti ráðið á síðasta fundi að veita Friðarbóli ehf, núverandi rekstaraðila tjaldsvæðanna, leyfi til reksturs smáhýsa eða Glamping á þessum stað og nær leyfið til tíu smáhýsa og gildir til 15.október 2016. Allar framkvæmdir á svæðinu skulu taka mið af tímabundnu leyfi og vera afturkræfar. Eigendur Friðarbóls eru Hafdís Kristjánsdóttir og Páll Scheving.
Erindið var samþykkt með fjórum atkvæðum gegn einu. Í bókun fagnaði Stefán Jónason, fulltrúi E-listans hugmyndum um byggingu smáhýsa á Heimaey í tengslum við ferðamannaþjónustu. �??�?g er hinsvegar ekki tilbúinn að samþykkja heimild til byggingar smáhýsa í Herjólfsdal enda tel ég að það þurfi að fara með mikilli gát við alla mannvirkjagerð þar m.a. vegna þess að dalurinn hefur ákveðinn sess í hugum Vestmannaeyinga með tilliti til sögu og menningar,�?? sagði Stefán og lagði til að haldin verði íbúakosning. Að þeirri könnun lokinni taki bæjaryfirvöld síðan ákvörðun í málinu. Vísaði Stefán til þess að nú þegar eru fordæmi fyrir íbúakosningu vegna umhverfis- og skipulagsmála.
Ekki voru fulltrúar D-lista sammála og létu bóka að �?að væri mat meirihluta ráðsins að ekki sé þörf á að fara með málið í íbúakosningu enda sé hvorki um að ræða varanlegt jarðrask né óafturkræfar aðgerðir og um er að ræða tímabundið leyfi til reynslu. �??�?á vill meirihluti ráðsins benda á að á 244. fundi ráðsins var ráðið einhuga um að staðsetning svæðisins skyldi vera í Herjólfsdal og því skýtur skökku við að nú þegar komin er umsókn um slíkt að þá sé fulltrúi E-lista á móti áður samþykktri staðsetningu,�?? segir í bókuninni sem Margrét Rós Ingólfsdóttir, Kristinn Bjarki Valgeirsson, Ingólfur Jóhannesson og Esther Bergsdóttir skrifuðu undir.
Stefán stóð fastur á sínu. �??Eftir síðasta fund Umhverfis- og skipulagsráðs og eftir að hafa skoðað betur tillögur Alta um svæðið get ég ekki samþykkt að koma smáhýsum fyrir á umræddu svæði í Herjólfsdal,�?? bókaði Stefán.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.