Stappaði ofan á höfði manns
Hæstirétt­ur staðfesti í dag gæslu­v­arðhalds­úrsk­urð til 8. apríl næst­kom­andi yfir manni vegna grófrar lík­ams­árás­ar þar sem hann sparkaði m.a. í höfuð ann­ars manns. Átti árás­in sér stað á skemmti­stað í Vest­manna­eyj­um fyrr í mánuðinum.
Við gagna­öfl­un lög­reglu í mál­inu voru m.a. notaðar mynd­bands­upp­tök­ur úr eft­ir­litsvél­um skemmti­staðar­ins. �?ar mátti sjá mann­inn m.a. stappa ofan á höfði brotaþol­ans.
Í dómi Héraðsdóms Suður­lands kem­ur fram að maður­inn eigi lang­an brota­fer­il að baki og að mati lög­regl­unn­ar í Vest­manna­eyj­um megi ætla að hann muni halda áfram brot­um á meðan mál­um hans er ekki lokið. �?á leik­ur rök­studd­ur grun­ur á að hann hafi rofið í veru­leg­um atriðum skil­yrði sem hon­um hafi verið sett í skil­orðsbundn­um dómi.
Maður­inn á sam­fellda brota­hrinu að baki, og þá aðallega lík­ams­árás­ir og fíkni­efna­laga­brot frá því í maí 2014. Hann hef­ur hlotið fjóra dóma fyr­ir slík brot auk þjófnaða, grip­deild og nytjastuld en á eft­ir að dæma í ell­efu mál­um sem hann varðar og eru þau tal­in upp í dómi héraðsdóms. �?ar af eru fimm lík­ams­árás­ir.
Lög­reglu­stjór­inn í Vest­manna­eyj­um krafðist þess að maður­inn skyldi sæta gæslu­v­arðhaldi til 14. apríl næst­kom­andi en sam­kvæmt 1. mgr. 97. gr. laga nr. 88/�??2008 verður gæslu­v­arðhaldi ekki markaður lengri tími en 4 vik­ur í senn. Maður­inn var hand­tek­inn 12. mars síðastliðinn og verður hon­um því gert að sæta gæslu­v­arðhaldi til 8. apríl.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.