Starfslaun bæjarlistamanns 2016
Bæjarráð Vestmannaeyja auglýsir eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2016, samkvæmt úthlutunarreglum frá 24.nóvember 2011. Hægt er að fá gildandi reglur afhentar á bæjarskrifstofunni en þær eru einnig á heimasíðu sveitarfélagsins.
Í reglunum kemur m.a fram að:
– Starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja má veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum.
– Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
Umsóknarfrestur er til og með 8.apríl 2016. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar í Einarsstofu kl. 11.00 á sumardaginn fyrsta þann 21.apríl nk. Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða í Ráðhús Vestmannaeyja, og skulu þær vera í samræmi við framangreindar reglur.
Nánari upplýsingar veita Margrét Ingólfsdóttir (margret@vestmannaeyjar.is) eða í síma 4882000.
Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.