Stebbi gengur Jakobsveginn til styrktar Eyjarósar
Stefán Sigurðsson, kokkur á �?órunni Sveins, hafði lengi dreymt um að ganga þá leið sem Jakob postuli er talinn hafa gengið á Íberíuskaga á tímum frumkirkjunnar. �?essi leið er ein helsta pílagrímaferð kristinna manna og í dag er þetta með fjölfarnari leiðum í evrópskum ferðaiðnaði. Gangan er um 900 kílómetrar og áætlað er að Stefán verði á gangi í 30 – 35 daga.
Ferðin hefst í borginni Biarritz sem er í suðvestur Frakklandi en þaðan gengur hann yfir Pýreneafjöllin yfir til Spánar. Stefán gengur svo í vestur til borgar sem heitir Santiago de Compostela en þar endar vegurinn í Dómkirkju borgarinnar. Ekki ætlar Stefán aðeins að ganga þessa leið heldur einnig standa fyrir áheitasöfnun fyrir Krabbavörn í Vestmannaeyjum, Eyjarós, sem styður krabbameinssjúka á margvíslega vegu. Hann hvetur alla að til þess að gefa Eyjarós a.m.k. 1 kr. fyrir hvern kílómeter sem hann gengur. �?að er ekki aðeins frábær stuðningur við mikilvægan málstað heildur einnig hvattning fyrir Stefán á för hans.
Hægt er fylgjast með ferð Stefáns á facebook-síðu sem búin hefur verið til vegna ferðarinnar, en þar er einnig að finna frekari upplýsingar um áheitasöfnunina. Slóðin á hana er hér

Nýjustu fréttir

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.