Stelpurnar luku deildinni á sigri
ÍBV vann Fjölni í síðasta leik liðanna í Olís-deild kvenna í kvöld. Lokastaðan var 28-31 en ÍBV leiddi með þremur mörkum í hálfleik 13-16.
Í byrjun leiksins voru Fjölnisstelpur mun sterkari og leiddu þær leikinn fyrstu fimmtán mínúturnar. ÍBV var lengi að stilla strengi sína og þurfa að skerpa á leik sínum fyrir úrslitakeppnina ef ekki á illa að fara.
Ester �?skarsdóttir skoraði 7 mörk og var markahæst, Kristrún �?sk Hlynsdóttir skoraði sex mörk en Vera Lopes og Ásta Björt Júlíusdóttir gerðu báðar fjögur mörk.
ÍBV endar deildina í 6. sætinu og mætir því Fram sem endaði í 3. sæti deildarinnar. �?að er ljóst að ÍBV ætlaði sér að vera ofar í deildinni er nú er komið að úrslitakeppninni og þarf liðið að sýna hvað í því býr.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.