Stelpurnar taka á móti Hetti
Kvennalið ÍBV tekur í dag á móti 1. deildarliði Hetti frá Egilsstöðum í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 14:00 en gengi ÍBV í síðustu leikjum hefur verið mjög gott og er liðið í þriðja sæti Pepsídeildarinnar. Höttur hefur hins vegar leikið tvo leiki í A-riðli 1. deildar, gegn nágrönnum sínum í Fjarðarbyggð og Sindra en Höttur hafði betur í báðum leikjunum. Það verður því spennandi að sjá hvort 1. deildarliðið nái að stríða úrvalsdeildarliðinu í dag.

Nýjustu fréttir

Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.