Stjörnufræðifélagið afhenti GRV sólmyrkvagleraugu
�?að hefur væntanlega ekki farið framhjá mörgum að sólmyrkvi verður að morgni föstudagsins 20. mars næstkomandi. Verður þetta mesti sólmyrkvi sem sést hefur frá Íslandi í 61. ár. Ef veður leyfir sést myrkvinn vel frá landinu öllu.
Í tilefni myrkvans afhentu Stjörnufræðifélag Vestmannaeyja í samvinnu við Stjörnufræðifélag Seltjarnarness og Hótel Rangá, nú fyrir stundu 625 sólmyrkvagleraugu nemendum og kennurum GRV. En hættulegt er augunum að horfa í myrkvann án slíkra glerauga.
Flestir kannast við að hægt er að valda bruna með því að beina sólargeislum í gegnum stækkunargler. Hið sama getur gerst í auganu þegar augasteinninn brýtur sólargeislana og beinir þeim í brennipunkt á sjónhimnu augans. Ef augað horfir beint í sólina getur því myndast brunagat á versta stað, það er í miðgróf sjónhimnunnar og veldur það blindum bletti í miðju sjónsviðsins, misstórum, með tilheyrandi sjónskerðingu sem oft er varanleg. �?að er því mjög brýnt að bera gleraugun allan tímann sem horft er á sólmyrkvann.
Hægt er að kaupa slík gleraugu í verslun Tölvunar við Strandveg og kosta þau aðeins 500 krónur.
Nánar verður fjallað um sólmyrkvan í blaði Eyjafrétta á miðvikudaginn.

Nýjustu fréttir

Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
SFS: Ekki öll nótt úti um stærri loðnukvóta
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Sjö ferðir Herjólfs falla niður vegna viðhalds
Herjólfur til Landeyjahafnar í dag og Þorlákshafnar á morgun
Þrjár ólögmætar uppsagnir kalla á skýr svör
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.