Stofnfundur Alzheimer stuðningsfélgs í kvöld
�?egar heilsan er góð og framtíðin bjo�?rt er yndislegt að lifa. �?að er mannlegt að eiga þannig óskir.En þegar heilsan bilar er framtíðin óviss og því fylgir gjarnan mikill kvíði. �?að er sársaukafullt þegar náinn aðstandandi greinist með langvinnan sjúkdóm og sjúkdómur á borð við heilabilun hefur í ofanálag oft mikil áhrif á hegðun og jafnvel persónuleika einstaklings- ins. Að missa stjórn á eigin lífi er valkostur sem enginn vill lenda í. Samt er það þannig að sjúkdómar sem herja á vitsmunalega getu mannsins birtast án tillits til óska hans. Hver verður næstur fyrir því að sjúkdómur bankar upp á veit enginn, en ef slíkur gestur birtist er mjo�?g gott að vita hvaða umgjo�?rð er í okkar samfélagi til að hjálpa í slíkum aðstæðum.
Alzheimer er ekki bara sjúkdómur ellinnar, hann greinist jafnvel hjá fólki sem er á fimmtugsaldri. Vitað er að tíðni hans eykst með hækkandi aldri. Miklar rannsóknir eru í gangi til að reyna að finna hvernig hægt er að bregðast við þessum vanda, en heilabilun er stundum ko�?lluð faraldur 21. aldarinnar. Í breskri grein kemur fram að kostnaður vegna hennar er talinn hærri en vegna krabbameins og hjartasjúkdóma til samans. �?að eru miklar vonir bundnar við að lækning finnist, en þær færa þeim lítið sem nú þegar hafa veikst. Við þurfum að beina kro�?ftum okkar að því að hlúa vel að þeim og veita þá þjónustu sem er mo�?guleg. �?ar eru sterkustu þættirnir sem snúa að hinu félagslega umhverfi og áherslan er á umo�?nnunarþáttinn, fræðslu til sjúklinganna, fræðslu til aðstandenda, þjálfun starfsfólks. Frá greiningu til lokastigs sjúkdómsins er gjarnan lo�?ng leið og gangur sjúkdómsins háður því hvernig til tekst að viðhalda persónueinkennum og hjálpa fólki að halda rútínu í daglegu lífi. �?ar kemur mjo�?g sterkt inn að auka fræðslu til almennings, til að auðvelda fólki að lifa í samfélaginu, en óo�?ryggi, kvíði og einangrun er fylgifiskur sjúkdómsins. Sérhæfðar deildir eru samt mikilvægar á seinni stigum sjúkdómsins þar sem hægt er að veita sólarhringsþjónustu og gera mo�?gulegt að lifa með reisn þrátt fyrir þennan óvelkomna gest. Undanfarnar vikur hefur undirbúningshópur unnið að stofnun stuðningfélags fyrir þá sem greinast með Alzheimer og aðra skylda sjúkdóma.Tilgangur félagsins er að efla skilning og þekkingu stjórn- valda, heilbrigðisstétta og almennings á þeim vandamálum, sem sjúklingar og aðstandendur eiga við að etja og efla samvinnu og samheldni aðstandenda með fræðslu og samverustundum.
Í kvöld, 10.mars verður stofnfundur Alzheimer stuðningsélags.
Fundurinn verður haldinn í Kviku 3. hæð og hefst kl 20:00.
Allir velkomnir – það verður heitt á ko�?nnunni og meðlæti.
Fyrir ho�?nd undirbúningshópsins �?órdís Gyða Magnúsdóttir Guðný Bjarnadóttir

Nýjustu fréttir

Er Herjólfsferð örugg ferð?
Eyjarnar fiskað afar vel að undanförnu
Samgöngur til Vestmannaeyja algerlega óásættanlegar
Skyldumæting í höllina í dag!
Undirskriftalisti vegna ástandsins í Landeyjahöfn
ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.