Stolið úr verslun
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í kringum áramótin og þurfti að aðstoða nokkra sökum ölvunarástand þeirra. Skemmtanahald áramóta gekk ágætlega fyrir sig og engin alvarleg mál sem upp komu.
Að morgni 2. janúar sl. var lögreglu tilkynnt að maður hefði fallið á milli skips og bryggju í Friðarhöfn og að tekist hafi að ná honum upp. Maðurinn, sem reyndist vera undir áhrifum áfengis, var blautur og kaldur og var komið til aðhlynningar á Heilsugæslunni. Honum mun ekki hafa orðið meint af volkinu.
Í liðinni viku var lögreglu tilkynnt um þjófnað úr verluninni Geisla en þjófnaðurinn átti sér stað þann 15. desember sl. Stolið var þráðlausum Sony hátalara að verðmæti um 20.000,-. Á eftirlitsmyndavélum verslunarinnar sást hverjir þarna voru að verki en um var að ræða tvo unga drengi. Haft var uppi á drengjunum og skiluðu þeir þýfinu. Málið verður sent barnaverndaryfirvöldum.
Að morgni 2. janúar sl. var lögreglu tilkynnt um rúðubrot í húsi við Strandveg en þarna hafði grjóti verð hent í gegnum rúðu. Ekki er vitað hver þarna var að verki og eru þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um það eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Ein sekt vegna brota á umferðarlögum liggur fyrir eftir vikuna en um var að ræða kæru vegna vanrækslu á að færa ökutæki til aðalskoðunar auk þess sem ljósabúnaði ökutækisins var ábótavant.

Nýjustu fréttir

Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.