Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Kertum var fleytt í tjörninni

Styrkleikar Krabbavarnar og Krabbameinsfélagsins fóru fram í blíðskaparveðri í Herjólfsdal í gær. Styrkleikarnir voru settir á hádegi og var gengið til kl. 20:00.

Styrkleikarnir eru táknræn leið til að sýna fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess að samfélagið standi með þeim alla leið.

Boðið var upp á tónlistaratriði meðan á viðburðinum stóð, en Sara og Una sungu og Aron Daði trúbador lék fyrir gesti.

Viðburðurinn gaf þátttakendum jafnframt tækifæri til hópeflis og góðrar samveru um leið og staðið var saman að mikilvægu málefni.

Göngunni lauk með áhrifamikilli ljósastund við tjörnina í Herjólfsdal. Þar var kertum fleytt á vatninu og hugsað til þeirra sem greinst hafa með krabbamein, auk þess sem þeirra sem látist hafa af völdum sjúkdómsins var minnst.

Óskar Pétur Friðriksson var á staðnum og myndaði.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin formlega sett – myndir
Magnús Dagur tryggði ÍBV sigur á Víkingi á lokasekúndunum
Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.