Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður

Það hefur varla farið fram hjá nokkrum Eyjamanni að veðurguðirnir hafa verið í óvenju góðu skapi síðustu vikurnar. Frá lokum júlí og fram á daginn í gær, sunnudaginn 16. ágúst hefur hver blíðudagurinn rekið annan í Vestmannaeyjum og regngallinn fengið kærkomið sumarfrí eftir votan júlí. Spurningin vaknar því: Er þetta einstakt eða hafa Eyjamenn áður fengið […]
Fjölbreytt námskeið hjá Visku í haust

Fjölbreytt námskeið verða í boði hjá Visku í haust og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á dagskránni verða bæði verkleg og skapandi námskeið, auk fjölbreyttrar fræðslu og námskeiða tengdum tækni. Meðal námskeiða sem verða í boði eru: Sushigerð Skyndihjálparnámskeið Ævintýraeyjan Ítalskt kvöld með Sigga Gísla Þrívíddarhönnun og þrívíddarprentun Samfélagsmiðla Masterclass Ragga […]
Myndlistargyðjan var alltaf í fyrsta sæti

Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant, hefur fengist við myndlist frá barnæsku, löngu áður en tónlistin tók yfir. Á Goslokahátíð sýndi hann teikningar sínar ásamt þremur öðrum listamönnum og seldi helming verkanna. „Já, ég er búinn að mála lengi, síðan ég var lítill drengur, á undan öllu, líka tónlistinni,“ segir Unnar Gísli […]
Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti fór fram um helgina

Vestmannaeyjar Open 2026 í pílukasti 2026 var haldið í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja dagana 14. og 15. ágúst. Um var að ræða opið mót og þurftu keppendur því ekki að vera skráðir í pílufélag til þess að taka þátt. 54 keppendur tóku þátt í heildina yfir allt mótið. Mótið hófst á föstudagskvöldið með tvímenningskeppni, svokölluðu ,,blind draw” […]
ÍBV tapaði á heimavelli gegn ÍA

ÍBV og ÍA mættust í 19. umferð Bestu deildar karla á Hásteinsvelli í kvöld. Leiknum lauk með 1-3 sigri gestanna. Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur. Skagamenn náðu forystu eftir tæpar 40 mínútur með glæsimarki frá Hauki Andra Haraldssyni. Hann fékk þá boltann rétt fyrir utan teig og fór fram hjá fjórum varnarmönnum ÍBV, inn á […]
Hlynur Andrésson hljóp maraþon á EM í morgun

Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson hljóp maraþon á Evrópumótinu í frjálsíþróttum, í Birmingham í morgun. Hann endaði í 45. sæti. 52 keppendur luku keppni en 59 hófu hlaupið. Hlynur kom í mark á 2 klukkutímum og 22,09 mínútum sem er langt frá hans besta tíma. Hann á Íslandsmetið sem hann setti árið 2021 en það er 2 […]
Aníta Óðinsdóttir – Tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár. Næst í röðinni er Aníta Óðinsdóttir, sem ætlar að hlaupa 10 km. Hún hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur. Aldur? Ég er 39 ára. Fjölskylda? Ég […]
Nýbyggingin við Tangagötu tekur á sig mynd

Framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús Steina og Olla að Tangagötu 10 eru komnar vel á veg. Í húsinu verða 16 íbúðir á fjórum efri hæðum, rúmlega 300 fermetra þjónustu- og skrifstofurými á jarðhæð og bílageymsla í kjallara. Íbúðirnar verða frá 74 upp í 178 fermetra og fylgir hverri þeirra stæði í bílageymslunni. Áætlanir gera ráð fyrir […]
Mikilvæg stig í húfi hjá ÍBV á Hásteinsvelli

ÍBV tekur á móti ÍA á Hásteinsvelli í dag í 19. umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og eru mikilvæg stig í húfi fyrir Eyjamenn í þéttri baráttu í neðri hluta deildarinnar. ÍBV situr í 9. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 18 leiki. FH er sæti neðar með jafnmörg stig […]
Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Eyjum á morgun

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild karla hefst í Vestmannaeyjum á morgun, sunnudag og stendur út þriðjudag. Átta klúbbar leika um sæti í efstu deild að ári. Keppt er í tveimur riðlum og komast tvö efstu liðin úr hvorum riðli í undanúrslit. Hér að neðan er hægt að sjá klúbbana sem taka þátt. 1. Golfklúbbur Setbergs […]
Minna á lokanir við Viðlagafjöru

Aukin umferð hefur verið um starfssvæði Laxey við Viðlagafjöru undanfarin kvöld. Talið er að umferðin tengist pysjutímabilinu sem nú er gengið í garð í Vestmannaeyjum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu er minnt á að mikil uppbygging stendur yfir á svæðinu og því sé um framkvæmdasvæði að ræða sem ekki er opið almenningi. Af öryggisástæðum verður hliðinu […]
Landtaka NSL-4 gekk samkvæmt áætlun

Landtöku nýju almannavarnarlagnarinnar NSL-4 í Skansfjöru lauk rétt rúmlega klukkan sex í morgun. Aðgerðin gekk mjög vel og var að fullu í samræmi við fyrirliggjandi skipulag og hönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum. Um klukkan hálffjögur í nótt var síðara endastykki lagnarinnar komið frá borði útlagningarskipsins Seven Navica. Skipið var þar með laust […]
Útlagningu NSL-4 lauk í nótt

Lokið var við að leggja nýju vatnslögnina NSL-4 yfir innsiglinguna til Vestmannaeyja í nótt og endi hennar tekinn á land. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, fylgdist með lokakafla framkvæmdarinnar og tók meðfylgjandi myndir. Blíðskaparveður var í Eyjum og góðar aðstæður þegar útlagningarskipið Seven Navica lauk við að leggja síðustu metra lagnarinnar. Að verkinu loknu hélt […]
Vestmannaeyjar eru hluti af því hver maður er

„Ég held að staða Vestmannaeyja sé gríðarlega sterk í dag og að allt sem við höfum sjálf í okkar höndum sé í mjög góðu lagi, þótt alltaf megi gera betur“, segir Páll Magnússon, fjölmiðlamaður, fyrrum alþingismaður og fráfarandi forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, spurður um stöðu Eyjanna. Hann segir þó að samgöngurnar kalli á stöðug og mikil […]
Síðustu metrarnir lagðir í nótt

Stefnt er að því að leggja síðustu metra nýju vatnslagnarinnar NSL-4 í sjó í nótt. Lögnin verður lögð yfir innsiglinguna til Vestmannaeyja og í kjölfarið verður endi hennar tekinn á land. Blíðskaparveður er í Vestmannaeyjum og kjöraðstæður til framkvæmda. Útlagningarskipið Seven Navica var komið inn í Klettsvík síðdegis í dag, þar sem undirbúningur fyrir lokakafla […]
ÍBV sigraði hollensku meistarana í æfingaleik

Karlalið ÍBV í handbolta er um þessar mundir statt í æfingaferð í Hollandi, sem er liður í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil í Olís deild karla. Í gærkvöldi spilaði liðið æfingaleik við hollensku meistarana í Volendam í fyrsta leik ferðarinnar. Leiknum lauk með 29-35 sigri ÍBV. Mörk ÍBV: Sveinn José Rivera 8 mörk, Dagur Arnarsson […]
„Eins og eitthvað væri að pikka í mig…“

Það voru tveir vinningshafar sem skiptu með sér einföldum 1. vinningi í Lottó síðastliðinn laugardag og fær hvor um sig rúmar 5,9 skattfrjálsar milljónir króna í vinning. Þau heppnu eru bæði rétt rúmlega fimmtug og búsett á höfuðborgar-svæðinu. Og þótt þau hafi haft sömu tölurnar réttar var leiðin að vinningnum ólík, segir í tilkynningu frá […]
Sandra Dís – Stemningshlaupari sem vill ná árangri

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár. Næst í röðinni er Sandra Dís Pálsdóttir, sem ætlar að hlaupa 21 km. Hún hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur. Aldur? Ég er 33 ára. Fjölskylda? […]
Golfvöllurinn í Eyjum á meðal þeirra bestu í heimi

Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum hefur komist á lista hins virta breska golftímarits Today’s Golfer yfir 100 ógleymanlegustu golfupplifanir heims. Völlurinn er í 23. sæti listans en Golfklúbbur Brautarholts er í 16. sæti. Listi Today’s Golfer byggir á mati sérstakra álitsgjafa sem ferðast um heiminn í leit að völlum með svokallaðan „X-faktor“ – völlum sem veita kylfingum […]
Framkvæmdir setja svip sinn á bæinn

Ýmsar framkvæmdir setja nú svip sinn á Vestmannaeyjabæ. Halldór B. Halldórsson fór á stjá og tók saman tveggja mínútna myndband þar sem flogið er yfir nokkra af helstu framkvæmdastöðum bæjarins. Ferðin hefst við Sólhlíð, þar sem unnið er að gatnagerð. Þaðan liggur leiðin suður á Eyju, þar sem borað er eftir bergi sem nýta á […]