Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja leggur til að heimiluðum íbúðum í fyrirhugaðri nýbyggingu við Strandveg 44 verði fækkað úr 12–14 í 8–12. Jafnframt verði dregið úr byggingarmagni og byggingarreiturinn færður fjær fjölbýlishúsinu við Tangagötu 10. Tillaga að breyttu deiliskipulagi vegna uppbyggingar við Strandveg 44 var auglýst í annað sinn frá 15. desember 2025 til 4. febrúar […]

Bergey með fínasta karfa

Bergey 20251009 102412

Ísfisktogarinn Bergey VE kom til Grindavíkur í morgun með 65 tonn af karfa. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra og er hann spurður hvernig veiðiferðin hafa gengið. „Við vorum í eina tvo sólarhringa að veiðum í túrnum og það gekk vel fyrri sólarhringinn en ekkert sérstaklega vel þann síðari. Það er […]

Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum

Ragnar Þór Jóhannsson í Vestmannaeyjum var tilkynntur til barnaverndar eftir að mynd birtist af honum og átta ára syni hans, Liam, á veiðum í Elliðaey. Á myndinni halda feðgarnir á byssum en Ragnar segir vopnin hafa verið óhlaðin og son sinn hvorki hafa notað né meðhöndlað skotvopn við veiðarnar. Ragnar vakti sjálfur athygli á málinu […]

Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng

Eyjagöng ehf. hafa gengið frá samningi við norska ráðgjafarfyrirtækið Norconsult um gerð heildstæðs fýsileika- og kostnaðarmats vegna fyrirhugaðra neðansjávarganga milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að verkefnið sé mikilvægur áfangi í því að kortleggja tæknilegar forsendur samgöngubótar sem gæti tryggt heilsársvegtengingu milli lands og Eyja. Norconsult býr yfir […]

Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma

Gamlar minjar koma óvænt undan sandi í Höfðavíkinni og Brimurð – Nýjar upplýsingar varpa ljósi á sögu spilsins úr Star of the East Fjaran í Vestmannaeyjum geymir ýmislegt og stundum þarf ekki annað en réttar aðstæður til að gamlar minjar, sem legið hafa faldar undir sandi og grjóti árum eða áratugum saman, komi skyndilega í […]

Skólastarf hefst á ný í GRV

Nú styttist í að skólastarf hefjist á ný í Grunnskóla Vestmannaeyja eftir sumarfrí. Undirbúningur fyrir nýtt skólaár er á lokametrunum og á mánudaginn mæta nemendur á ný til leiks. Skólasetning 2.–10. bekkjar Skólasetning fyrir nemendur í 2.–10. bekk fer fram í Íþróttahúsinu mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:30. Foreldrar nemenda í 2.–6. bekk mæta svo með […]

Höfum kjark til að horfa á staðreyndir

Umræðan um Evrópumál hefur um áratugaskeið verið eitt stærsta spurningarmerkið í íslenskri stjórnmálaumræðu. Um þessar mundir heyrist ítrekað að málið sé svo eldfimt að það sé að kjúfa þjóðina í herðar niður og færi okkur ekkert nema að sundrung. Því vísa ég algjörlega á bug. Samtal er merki um heilbrigði Lýðræðislegt samtal – meira að […]

Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár. Síðastur í röðinni er Sindri Georgsson, sem ætlar að hlaupa 21,1 kílómetra. Hann hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur. Aldur? Verð 35 ára í október. Fjölskylda? […]

Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs

Alls ferðuðust 81.579 farþegar með Herjólfi og Baldri í júlí, samanborið við 85.895 í sama mánuði í fyrra. Farþegum fækkaði því um 4.316 milli ára, eða um 5%. Þrátt fyrir fækkunina var þetta fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs. Fækkunina má að hluta rekja til veðurs, en þoka og rigning settu svip sinn á marga […]

Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári

Karlasveit Golfklúbbs Vestmannaeyja sigraði í dag 2. deild á Íslandsmóti golfklúbba. Mótið fór fram í Vestmannaeyjum dagana 16. – 18. ágúst og tóku átta klúbbar þátt. Í úrslitum mætti Golfklúbbur Vestmannaeyja liði Setbergs þar sem barist var fram á síðustu holu og fóru leikar 3-2. Golfklúbbur Vestmannaeyja leikur því í deild þeirra bestu á næsta […]

Mikið siglt og víða leitað eftir afla

Eyjarnar

Bergey VE landaði um 55 tonnum í Grindavík í gær og Vestmannaey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í morgun. Þessa dagana er ekki mikil veiði fyrir sunnan land en þokkalegur afli hefur fengist úti fyrir suðausturlandinu. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk hjá þeim fréttir af gangi mála. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á […]

Skólastarf að hefjast á ný í FÍV

Nú styttist í að skólastarf hefjist á ný í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Nýnemar mæta til leiks á morgun, miðvikudaginn 19. ágúst, en kennsla hefst daginn eftir, fimmtudaginn 20. ágúst. Nýnemadagurinn er ætlaður nemendum sem eru að hefja framhaldsskólagöngu sína. Nýnemar mæta klukkan 13:00 á sal skólans þar sem þeir hitta umsjónarkennara sína og fá meðal […]

Íslendingar eru þjakaðir af launahækkunum

Hin „sjálfsagða“ hugmynd um að lántaki sé laus við íbúðalánið sitt með því að greiða bara upp höfuðstól íbúðalánsins kostaði ríkissjóð um 400 milljarða á núverandi verðlagi, eða um 4-5 milljónir á hverja fjölskyldu í landinu. Tilfinningar góða fólksins um réttlæti fyrir lántakann bar sigur á stærðfræðilegri lógík fýlupúkanna sem vöruðu við þeim skilmálum lána Íbúðalánasjóðs sem heimiluðu lánveitanda að greiða upp 40 ára lánið sitt á föstu vöxtunum án þess að taka tillit til markaðsvaxta á hverjum tíma. Þetta réttlæti kostaði skattgreiðendur 400 […]

Óska eftir tilnefningum frá bæjarbúum

default

Vestmannaeyjabær óskar eftir tilnefningum frá bæjarbúum til umhverfisviðurkenninga fyrir árið 2026. Veittar verða viðurkenningar í fimm flokkum: Snyrtilegasta eignin Snyrtilegasti garðurinn Snyrtilegasta fyrirtækið Endurbætur til fyrirmyndar Framtak á sviði umhverfismála Bæjarbúar eru hvattir til að senda inn tillögur að einstaklingum, eignum eða fyrirtækjum sem þeir telja eiga viðurkenningu skilið. Tilnefningar skulu sendar á netfangið dagny@vestmannaeyjar.is […]

Aron Valtýsson – Hleypur maraþon fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár. Næstur í röðinni er Aron Valtýsson, sem ætlar að hlaupa 42,2 kílómetra. Hann hleypur fyrir Krabbavörn Vestmannaeyja. Aldur? Ég er 30 ára. Fjölskylda? Ég á góða fjölskyldu. Ingunn Lísa mamma mín, systir mín […]

Millet-gengið tekur Eyjar alltaf með trompi

Æskuvinir sem halda tryggð við ræturnar – Björgvin Þór og Margrét byrjuðu helgina í afmæli Kolbrúnar Önnu og enduðu með yfirburðasigri á Millet Open – Árshátíð og Þjóðhátíðarhittingur fastir liðir Það eru til góðir árgangar – og svo eru til árgangar sem einfaldlega neita að hætta að skemmta sér saman. Millet-gengið úr Vestmannaeyjum virðist svo […]

Páll aftur á Sprengisandi – Beint í djúpu laugina

Eyjamaðurinn Páll Magnússon tekur við einum þekktasta umræðuþætti landsins – Fyrsti þátturinn daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið – „Það verður þá um eitthvað að tala“ Eyjamaðurinn Páll Magnússon, gamalreyndur fjölmiðlamaður og fyrrverandi þingmaður, tekur við stjórn Sprengisands á Bylgjunni af Kristjáni Kristjánssyni. Páll sest fyrst í stjórnendasætið sunnudaginn 30. ágúst og óhætt er að segja […]

Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika

Þingmaður Viðreisnar

Þann 29. ágúst næstkomandi mun ég mæta á kjörstað og segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sú ákvörðun er tekin að vel ígrunduðu máli og djúpri sannfæringu um að íslensk heimili, almenningur og komandi kynslóðir eigi skilið meira réttlæti, gagnsæi og efnahagslegan stöðugleika til lengri tíma. Einn stærsti orsakavaldur misskiptingar á Íslandi […]

Fótboltamaðurinn Bjarki Björn Gunnarsson er íþróttamaður mánaðarins

Bjarki hefur átt góðu gengi að fagna með ÍBV á tímabilinu. Hann hefur tvisvar verið valinn í lið umferðarinnar í sumar og einu sinni verið útnefndur stjörnuleikmaður umferðarinnar. Bjarki hefur skorað þrjú mörk í deildinni og lagt upp sex. Hann átti meðal annars stórleik þegar ÍBV vann Þór, en þar lagði hann upp fjögur mörk […]

Veðurblíðan í Eyjum í sumar á sér fáar hliðstæður

Það hefur varla farið fram hjá nokkrum Eyjamanni að veðurguðirnir hafa verið í óvenju góðu skapi síðustu vikurnar. Frá lokum júlí og fram á daginn í gær, sunnudaginn 16. ágúst hefur hver blíðudagurinn rekið annan í Vestmannaeyjum og regngallinn fengið kærkomið sumarfrí eftir votan júlí. Spurningin vaknar því: Er þetta einstakt eða hafa Eyjamenn áður fengið […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.