Tekur yfir kynningu- og markaðssetningu á Vestmanneyjum sem ferðamannastaðar
�?ekkingarsetur verði í kjölfarið í fararbroddi og forsvari í kynningu- og markaðssetningu á Vestmanneyjum sem ferðamannastaðar. Um leið annist Setrið ákveðna rekstrarþætti og ábyrgð sem nánar er fjallað um í samkomulagi þessu.
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku var samþykktur samningur Vestmannaeyjabæjar og �?ekkingarseturs vegna ferðamála. Kom fram á fundinum að með samningnum stefni bærinn að því að auka aðkomu fagaðila í ferðaþjónustu að opinberri stefnumótun greinarinnar. Einnig að efla og bæta innra starf ferðaþjónustunnar og þróa aðkomu sveitafélagsins. Markmiðið er að á ákveðnum tíma verði aðkoma bæjarins sambærileg við aðrar atvinnugreinar. �?ekkingarsetur verði í kjölfarið í fararbroddi og forsvari í kynningu- og markaðssetningu á Vestmanneyjum sem ferðamannastaðar. Um leið annist Setrið ákveðna rekstrarþætti og ábyrgð sem nánar er fjallað um í samkomulagi þessu.
Í samningnum segir að �?V: �?tlar að byggja upp á metnaðarfullan hátt sameiginlega kynningu og markaðssetningu á Vestmannaeyjum í heild bæði innanlands og utan. Leggja áherslu á að skapa sterka og jákvæða ímynd af Vestmannaeyjum fyrir vöru- og þjónustugæði sem uppfylli þarfir ferðaþjónustunnar. �?tlar að taka tillit til allra atvinnugreina í Vestmannaeyjum því samstarf allra atvinnugreina er lykilatriði við að ná árangri í eflingu Vestmannaeyja. �?V ætlar að leiða aðkomu Vestmannaeyjabæjar að kynningu á sveitarfélaginu sem áfangastað fyrir ferðamenn.
�?á segir: �??Með samkomulagi þessu annast �?V þá aðkomu Vestmannaeyjabæjar að ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum sem áður hefur verið á höndum ferðamálafulltrúa Vestmannaeyjabæjar. �?ar undir fellur m.a. kynning á sveitarfélaginu sem áfangastaðar fyrir ferðamenn, aðkoma að auglýsinga og kynningastarfi, aðkoma að bæjarhátíðum, þrettándi, goslok, þjóðhátíð, Nótt safnanna og fl., þátttaka í upplýsingaveitu til erlendra aðila, samstarf um uppbyggingu ferðamannastaða í Vestmannaeyjum, útgáfa á kortum og kynningarefni og fl. Ferðamálasamtök Vestmannaeyja munu einnig í samstarfi við forstöðumann Eldheima- annast samskipti við aðra aðila í greininni svo sem Íslandsstofu, Markaðsstofu Suðurlands, Samtök ferðaþjónustunnar og fl.
Vestmannaeyjabær mun eftir sem áður nýta tengsl sín og úrræði til að kynna sveitarfélagið sem áfangastað fyrir innlenda og erlenda ferðamenn. Miðstöð slíkrar starfsemi verður í Eldheimum og mun forstöðumaður Eldheima annast utanumhald.�??

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.