Þarf að tryggja að kerfið sé bæði sanngjarnt og raunhæft
Guðrún Hafsteinsdóttir

Nýverið funduðu fulltrúar Útvegsbændafélags Vestmannaeyja með þingmönnum Suðurkjördæmis. Flestir oddvitanna mættu til fundarins. Eyjafréttir ræddu við tvo þeirra að fundi loknum. Annar þeirra er Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Spurð hvað henni hafi þótt markverðast sem kom fram á fundinum segir hún að það hafi verið mjög gagnlegt að heyra beint frá fólki sem rekur útgerð í samfélögum þar sem sjávarútvegur skiptir öllu máli. „Það sem stóð upp úr var hvernig breytingar á veiðigjöldum geta haft mjög mismunandi áhrif eftir stærð, afkomu og rekstrarumhverfi útgerða – og hvernig þær geta haft bein áhrif á atvinnulíf, verðmætasköpun og stöðugleika í sjávarbyggðum eins og Vestmannaeyjum. Þetta undirstrikar hversu mikilvægt er að löggjafinn vandi til verka og horfi ekki á kerfið í heild án þess að taka mið af mismunandi aðstæðum.”

Áttu von á að það verði gerðar breytingar á frumvarpinu í meðförum þingsins?

Ég geri ráð fyrir því. Það hefur komið fram gagnrýni á ákveðin atriði í frumvarpinu, meðal annars frá hagsmunaaðilum, þingmönnum og sveitarstjórnum. Ég held að það sé bæði skynsamlegt og eðlilegt að Alþingi fari rækilega yfir frumvarpið og geri þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að tryggja að kerfið sé bæði sanngjarnt og raunhæft – og að það stuðli að sátt og stöðugleika.

Mikilvægt að huga að sveigjanleika í kerfinu

Aðspurð um hvaða breytingar hún vildi helst sjá gerðar á frumvarpinu segir Guðrún að henni finnist mikilvægt að huga að sveigjanleika í kerfinu – sérstaklega með tilliti til minni og meðalstórra útgerða sem starfa í brothættum byggðum.

„Veiðigjöld eiga að endurspegla afkomugetu en ekki grafa undan rekstrargrundvelli þeirra sem hafa lítið svigrúm. Það þarf einnig að tryggja að breytingar á veiðigjöldum rýri ekki samkeppnishæfni greinarinnar eða veikji grundvöll þeirra sem hafa skapað störf og verðmæti í áratugi.”

Þá liggur beint við að spyrja Guðrúnu hvort hún sé bjartsýn á að slíkar breytingar nái í gegn? „Já, ég er það. Ég finn að meðal þingmanna er vilji til að fara yfir málið af ábyrgð og hlusta á þau sjónarmið sem hafa komið fram. Við höfum öll hagsmuni af því að kerfið sé bæði réttlátt og sjálfbært – og að það styðji við áframhaldandi verðmætasköpun í sjávarútvegi sem er einn mikilvægasti burðarás íslensks efnahagslífs,” segir Guðrún.

Eyjafréttir standa fyrir opnum fundi á fimmtudaginn næstkomandi um veiðigjöldin. Fundað verður í Akóges og hefst fundurinn klukkan 17.00. Þar munu forsvarsmenn fyrirtækjanna í Vestmannaeyjum verða til svara, ásamt fulltrúum bæjarins auk þess að farið verður yfir áhrif hækkanna á Vestmannaeyjar.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.