Þarf að tryggja fjármagn til að ljúka rannsóknum á jarðgöngum
Vidir1 1536x1022
Víðir Reynisson

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi kvaddi sér hljóðs undir störfum þingsins á þingfundi í dag. Þar ræddi hann samgöngur. Sagði hann að samgöngur séu sífellt úrlausnarefni stjórnmálanna. Samgöngur eru stór hluti af mikilvægum öryggismálum.

„Þjóðvegurinn er jafnframt hættulegasti ferðamannastaðurinn okkar. Við verðum að setja öryggi allra þeirra sem nota vegina okkar í fyrsta sæti því að þjóðvegurinn er á sama tíma lífæð flestra samfélaga.

Í Suðurkjördæmi má t.d. finna marga vegkafla sem eru hættulegir og á sama tíma mjög umferðarþungir. Reykjanesbrautin er einn fjölfarnasti vegur landsins. Mikið hefur verið unnið í tvöföldun hans og aðskilnaði akstursstefna með góðum árangri og fækkun slysa, en betur má ef duga skal og mikilvægt að hraða sem mest tvöföldun vegarins alla leið að flugstöð. Vegir að og um vinsælustu ferðamannastaðina í uppsveitum Árnessýslu bera ekki með neinu öryggi alla þá umferð sem þar er og forgangsraða þarf uppbyggingu vega á því svæði með hliðsjón af öryggi.

Í Öræfunum er fjöldi af einbreiðum brúm og alvarleg slys á því svæði eru algerlega óþolandi. Á sama svæði er viðbúnaðurinn takmarkaður, að hluta til byggður á sjálfboðaliðum björgunarsveitanna. Það er brýnt að hraða útrýmingu einbreiðra brúa og horfa til uppbyggingar vega sem bera raunverulega alla umferðina á þá vinsælu ferðamannastaði sem í Öræfunum eru. Vegurinn um Gatnabrún og Reynisfjall er enn eitt dæmi um erfiðan og hættulegan veg og mikilvægt að skoðaðar verði til hlítar alvörulausnir á þeim vegi með jarðgöngum.

Samgöngur til Vestmannaeyja eru síðan sérkapítuli út af fyrir sig. Nú þarf að tryggja áfram fjármagn til að ljúka rannsóknum og möguleikum á jarðgöngum til Eyja. Á sama tíma þarf að taka saman öll þau gögn sem unnin hafa verið varðandi Landeyjahöfn og ljúka mögulegum aðgerðum á höfninni til að fjölga þeim dögum sem eingöngu er siglt til Landeyja í stað Þorlákshafnar.

Það eru mörg áríðandi verkefni í framhaldinu í samgöngum um allt land og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur mikinn metnað til að gera vel í þessum málaflokki,” sagði Víðir í ræðu sinni.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.