Þjóðhátíðarstemmning í Ráðhúsinu

Vestmannaeyjabær verður heiðursgestur Menningarnætur í Reykjavík í tilefni af 50 ára goslokaafmælis og langvarandi vinatengslum bæjarfélaganna. Að sögn Eyjamannsins Þorsteins Gunnarsson borgarritara er þetta í annað sinn í sögu Menningarnætur í Reykjavík sem Eyjamönnum hlotnast þessi heiður en það gerðist síðast 2004. Hefð er fyrir því að vera með heiðursgesti á Menningarnótt, í fyrra var það Support frá Ukraine, 2019 var það Blindrafélagið, 2017 Akranes og 2016 Ísafjörður, svo dæmi sé nefnt. Þorsteinn segir að mikil tilhlökkun sé hjá skipuleggjum Menningarnætur í Reykjavík að fá Vestmannaeyinga í Ráðhúsið „enda fylgi okkur ferskur andvari og hressileiki þar sem boðið verður upp á brot af því besta úr menningu Eyjamanna í söng, mat og þjóðhátíðarstemmningu. Það mun ríkja sannkölluð þjóðhátíðarstemmning í Ráðhúsinu.“

Undirbúningur fyrir viðburðinn í Ráðhúsinu hófst í upphafi ársins og hefur Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri ásamt öflugu teymi Vestmannaeyjabæjar skipulagt viðburðinn með stuðningi samskiptateymis á skrifstofu borgarstjóra og borgarstjóra og stjórn Átthagafélags Vestmannaeyinga í Reykjavík en þáttur þess félags er ríkulegur í undirbúningnum. Að sögn Þorsteins hefur samstarfið verið frábært og vildi hann koma kæru þakklæti á framfæri til allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn. Kynning verður fyrir fjölmiðla á dagskránni í þjóðhátíðartjaldi í Hljómskálagarðinum á fimmtudag kl. 11.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er fullur tilhlökkunar fyrir komu Eyjamanna 50 árum eftir eldgosið á Heimaey enda tilefnið mun gleðilegra.

„Hálfri öld eftir gosið tökum við á móti Eyjamönnum undir mun skemmtilegri kringumstæðum enda er þetta tími til að fagna. Þann 3. júlí voru liðin 50 ár frá goslokum í Vestmannaeyjum, þann 20. ágúst verður Reykjavíkurborg 237 ára og Menningarnótt er núna 28 ára. Menningarnótt er stærsti viðburður ársins í Reykjavík og er ætluð öllum borgarbúum og gestum sem vilja taka þátt í hátíðinni og skemmta sér og Vestmannaeyingar eru sérstakir heiðursgestir okkar í ár. Eins og Eyjamanna er von og vísa hafa þeir skipulagt glæsilega eins og þeirra er von og vísa,“ segir borgarstjóri.

Íris bæjarstjóri með sínu fólki á þjóðhátíðinni í ár.

Mynd Addi í London.

Nýjustu fréttir

Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Norlandair með lægsta tilboð í flug til Eyja
„Hörkufiskirí”
Gular viðvaranir í öllum landshlutum
Viðburðaríkir og skemmtilegir fjölgreindarleikar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.