Þorlákur Árnason áfram hjá ÍBV
Þorlákur Árnason. Ljósmynd/IBVsport

Knattspyrnuþjálfarinn Þorlákur Árnason verður áfram þjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá félaginu. Þetta eru miklar gleðifréttir enda hefur Láki gert frábæra hluti með liðið á leiktíðinni. 

Flestir spáðu ÍBV neðsta sæti deildarinnar en liðið hefur siglt lygnan sjó í deildinni í nokkuð langan tíma, þrátt fyrir að meiðsli hafi sett strik í reikninginn hjá liðinu. Liðið var síðast í fallsæti eftir 1. umferðina og situr nú í 7. sæti deildarinnar með 33 stig eftir 25 leiki. Þessu er greint frá á vefsíðu ÍBV. 

Þar segir einnig að Þorlákur hafi ásamt sínu teymi sýnt knattspyrnuáhugamönnum að mikið býr í leikmannahópi liðsins og séð til þess að liðið haldi sæti sínu í Bestu deildinni í fyrsta skiptið frá árinu 2022.

Knattspyrnuráð hefur verið mjög ánægt með störf Láka á tímabilinu og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.

Nýjustu fréttir

Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.