Þrír Eyjamenn í stjórn SFS
Sjonum DSC 7447 Min
Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) var haldinn í dag. Í tilkynningu frá samtökunum segir að ný stjórn hafi verið kjörin á fundinum fyrir starfsárið 2025 – 2026.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. var kosinn formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á aðalfundi samtakanna í Hörpu í dag. Hann tekur við af Ólafi Marteinssyni sem verið hefur formaður undanfarin fimm ár. 

Þrír Eyjamenn eru í stjórninni. Þau Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélags hf., Lilja Björg Arngrímsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar hf. og Viðar Elíasson, framkvæmdastjóri Narfa ehf.

Stjórnin er þannig skipuð:

  1. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., formaður
  2. Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess hf.
  3. Anna Guðmundsdóttir, fjármálastjóri Gjögurs hf.
  4. Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Samherja Íslandi ehf.
  5. Bergur Þór Eggertsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Nesfisks ehf.
  6. Daði Hjálmarsson, framkvæmdastjóri KG Fiskverkunar hf.
  7. Daníel Jakobsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar Arctic Fish hf.
  8. Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélags hf.
  9. Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf.
  10. Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf.
  11. Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf.
  12. Heiðar Hrafn Eiríksson, stjórnarformaður Útgerðarfélags Grindavíkur ehf.
  13. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf.
  14. Kristján G. Jóakimsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf.
  15. Lilja Björg Arngrímsdóttir, sviðsstjóri mannauðs- og lögfræðisviðs Vinnslustöðvarinnar hf.
  16. Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og flutninga Arnarlax ehf.
  17. Óttar Ásbjörnsson, útgerðarstjóri Fisk-Seafood ehf.
  18. Viðar Elíasson, framkvæmdastjóri Narfa ehf.
  19. Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Iceland Seafood ehf.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.