Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru
Sigurjón Óskarsson við athafnasvæði Laxeyjar í Viðlagafjöru. Ljósmynd/ facebooksíða Laxey.

Þann 17. febrúar 2023 tók Sigurjón Óskarsson, einn af kjölfjárfestum í Laxey, fyrstu skóflustunguna fyrir áframeldið í Viðlagafjöru. „Ég mokaði ekki miklu sjálfur, en það hefur verið mokað heilmikið síðan þá og það er í raun ótrúlegt hvað mikið er búið að gerast,“ er haft eftir Sigurjóni á facebook-síðu fyrirtækisins. Þar segir einnig að frá þeim degi hafi framkvæmdir þróast hratt og markvisst, í samræmi við upprunalega tímaáætlun.

Nú er fyrsti áfangi kominn í fullan rekstur og uppbygging á öðrum áfanga vel á veg komin. Öll átta kerin í áfanga tvö hafa verið reist og tæknileg uppsetning stendur yfir. Gert er ráð fyrir að fyrstu kerin fari í notkun í haust og að öll kerin verði komin í rekstur fyrir lok árs.

Uppbygging stórseiðahúss félagsins gengur vel og mun starfsemin hefjast fljótlega á öðrum ársfjórðungi. Með því eykst framleiðslugeta félagsins samhliða því sem rekstrarsveigjanleiki styrkist og áframhaldandi uppbygging fær aukinn kraft.

Nú þegar hafa fjórir seiðahópar verið fluttir frá seiðastöð fyrirtækisins í áframeldið og í þessari viku fer fram flutningur á þeim fimmta. Frá nóvember 2025 hafa jafnframt farið fram vikulegar slátranir á um fimm kílóa laxi sem gengið hafa mjög vel; gæði eru góð og viðskiptavinir ánægðir.

Á meðfylgjandi mynd heldur Sigurjón Óskarsson á sömu skóflu og notuð var við fyrstu skóflustunguna 17. febrúar 2023. Laxey stefnir á 5.000 tonna framleiðslu á árinu.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.