Tilkynning frá Orkumótsnefnd Og ÍBV
Á föstudaginn var átti hvert félag að tilnefna leikmann í landslið/pressulið fyrir leikina sem spilaðir voru þá um kvöldið. Eitt félagið tilnefndi stúlku í liðið og fékk viðkomandi félag upplýsingar um að það gengi ekki þar sem Orkumótið væri drengjamót.
Undanfarin ár hafa verið gerðar undantekningar fyrir lítil félög á landsbyggðinni, þar sem ekki er stúlknalið í þeirra flokki, og stúlkum leyfð þátttaka í þeim liðum. Vonumst við til að geta viðhaldið því fyrirkomulagi því það er vilji ÍBV að sem flestir krakkar fái að upplifa það að spila á stórmóti sem þessu.
Fyrir rétt rúmum tveimur vikum var TM mótið í Eyjum, en á því móti er einnig spilaður leikur á milli landsliðs og pressuliðs. �?essi iðkandi mun vonandi fá tækifæri til að spila slíkan leik þegar og ef hún mætir á TM mótið í Eyjum í 5. flokki stúlkna.
Ef knattspyrnuhreyfingin telur það íþróttinni og iðkendum til framdráttar að hætta að spila í kynjaskiptum liðum á mótum á borð við Orkumót og TM mót þá mun ÍBV íþróttafélag taka fyrirkomulag þessara móta til endurskoðunar. Ef ekki þá munum við halda áfram að hafa þessi mót okkar kynjaskipt í samræmi við stefnu KSÍ – í þeirri von að þannig séum við að mæta þörfum bæði drengja og stúlkna.
Björgvin Eyjólfsson f.h. Orkumótsnefndar og
Dóra Björk framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags

Nýjustu fréttir

Þoka hér en ekki þar
Þakkir frá Krabbavörn Vestmannaeyja
Deloitte tekur við endurskoðun Vestmannaeyjabæjar
Prjónuðu 83 húfur gegn einelti
Anita tekur við sem hjúkrunarstjóri heilsugæslunnar í Eyjum
Samfélagsstyrkur Krónunnar styður þjálfun barna í Vestmannaeyjum  
Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.