Tveir þjófnaðir tilkynntir
Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála sem komu inn á borð hennar. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og lítið um útköll á öldurhús bæjarins.
Tveir þjófnaðir voru tilkynntir til lögreglu í liðinni viku, annars vegar var farið inn í bifreið og þaðan stolið peningum en í hinu tilvikinu var farið inn í bílskúr og þaðan tekin áfengi, sem fannst reyndar skammt frá bílskúrnum. Vitað er hver þarna var að verki og hefur viðkomandi viðurkennt að hafa tekið peningana úr bifreiðinni sem og farið inn í bílskúrinn. Málið telst því upplýst.
Um miðja síðustu viku var lögreglu tilkynnt um að eldur logaði í smábát sem staddur var fyrir austan Eyjar. Einn maður var um borð og tókst honum að komast um borð í gúmmíbjörgunarbát og var síðan bjargað um borð í Frá VE. Björgunarfélag Vestmannaeyja, Lóðsinn og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kölluð út og tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. Báturinn var síðan dregin til lands, en talið er að kviknað hafi í út frá rafmangi. Málið er málið í rannsókn.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu í vikunni en um var að ræða árekstur við Sjúkrahúsið þar sem ekið var á kyrrstæða bifreið. Engin slys urðu á fólki.

Nýjustu fréttir

Öryggi og framtíðarsýn í forgrunni
Bærinn leggur fram 432 milljónir vegna vatnslagnarinnar
Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.