Úlli open: Um 900.000,- til Krabbavarnar
20240817 201810 Copy
Frá afhendingu styrksins. Ljósmynd/aðsend

Í gær fór fram styrktar-golfmótið “Úlli open” við frábærar aðstæður á golfvellinum hér í Eyjum.

„Þetta er styrktarmót í minningu Gunnlaugs Úlfars Gunnlaugssonar, Úlla okkar. Mótið hefur verið haldið frá 2020, en þá var þetta minningarmót um Úlla, en síðan höfum við haldið það á hverju ári, sem styrktarmót fyrir Krabbavörn í Vestmannaeyjum, í minningu Úlla.  Að þessu sinni söfnuðust rétt um 900.000,- krónur og hefur mótið þá skilað rétt tæpum fjórum milljónum til styrktar þessu þarfa og góða málefni frá því það var haldið fyrst.“ segir Bjarni Ólafur Guðmundsson, einn af skipuleggjendum mótsins.

„Úlli kynnti sig gjarnan sem Eyjamann fæddan á Siglufirði, en búsettur í Grindavík.  Við Eyjamenn sem að þessu komum viljum sérstaklega þakka vinum okkar úr Grindavík fyrir komuna og tryggðina sem þau sýna okkur ár eftir ár.  Þá viljum við sem að þessu stöndum þakka öllum fyrirtækjunum sem styðja við okkur í þessu verkefni fyrir þeirra mikilvæga framlag.  Til stendur að gera mótið enn stærra á næsta ári og verður það allt saman kynnt síðar.“ segir Bjarni Ólafur.

Þakklæti okkur efst í huga

Sigurbjörg Kristín Óskarsdóttir, formaður Krabbavarnar segir af þessu tilefni að þakklæti sé þeim efst í huga. „Félagið þakkar fyrir þann kærleik sem því er sýnt með þessum styrk. Styrkurinn hefur mikið að segja fyrir félagið, sem styður félagsmenn sem greinast með krabbamein.“ segir hún. Það voru þau Olga, Guðrún og Óskar Pétur sem tóku á móti styrknum fyrir hönd Krabbavarnar.

20240817 201647

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.