Upphafið að Biggest Looser ævintýrinu hjá Olgeiri Steinþórssyni var þegar hann og Ingveldur unnusta hans voru að horfa á lokaþáttinn í seríu tvö á Skjá 1. �??Ingveldur var að spyrja einhverra spurninga og svo kom bara í ljós að hún var að fylla út umsókn fyrir mig sem ég svo samþykkti að yrði send inn. �?annig að í raun var þetta bara gert upp á grín. �?g bjóst ekki við að komast inn en annað kom á daginn og frábært að fá þetta tækifæri. Alveg einstakt.�?? Olgeir er frá Akureyri en býr nú í Vestmannaeyjum og vinnur í fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar. Hann hefur fundið fyrir gríðalegum stuðning frá Eyjamönnun, sérstaklega starfsfélögunum sem styðja þétt við bakið á honum. Olgeir hafði aldrei komið til Vestmannaeyja áður en hann flutti hingað með unnustu sinni, Ingveldi Theodórsdóttur, sem er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. �??�?g ætlaði alltaf að koma á þjóðhátíð en hafði aldrei látið verða af því. Í fyrra upplifði ég hana í fyrsta skiptið, með heimafólki í hvítu tjaldi, sem var alveg geðveikt,�?? sagði Olgeir sem líður mjög vel í Vestmananeyjum og finnst heimamenn vera virkilega kurteisir og almennilegir.
Minnsta áreynsla gerði mann móðan og másandi
Olgeir var orðinn 147,4 kg þegar hann hóf þátttöku sína í Biggest Looser. �??�?g byrjaði að þyngjast þegar ég flutti til Noregs í kringum 2000 og fór að vinna í bakaríi. �?g áttaði mig ekkert á þessu fyrst en svo var þetta bara verra og verra. �?egar ég flutti heim árið 2008 var ég orðin 130 kg og ég hélt áfram að þyngjast eftir það.�?? Hreyfigeta Olgeirs var orðin takmörkuð. �??�?að var orðið erfitt að klæða sig í sokka og skó og minnsta áreynsla gerði mann móðan og másandi. Núna hins vegar get ég hlaupið út í búð án þess að finna fyrir því.�??
Fékk góða hjálp í Metabolic og Hressó
Lífið eftir Ásbrú segir hann allt annað. �??Mér finnst ég hafa vaknað til lífsins og er aftur orðinn tvítugur á líkama og sál, þetta er svona fyrir og eftir martröð hreinlega, lífið er svo miklu léttara.�?? Vikurnar níu á Ásbrú kláruðust fyrir jól og fóru svo keppendur til síns heima að vinna í sínum málum. Minna og Steina í Metabolic buðu mér og Ingveldi að koma og æfa hjá sér sem var alveg frábært. Gilli, Jóhanna og Anna Dóra hjá Hressó tóku mig einnig að sér. �?g er þeim alveg svakalega þakklátur, hjálpuðu þau mér alveg svakalega mikið.�??
�?tlar að halda sínu striki
Olgeir er staðráðinn í því að halda sér á sömu braut og hefur mikinn áhuga fyrir því að stunda kraftlyftingar. Hann og Ingveldur eru saman í þessari lífstílsbreytingu sem er
komin til að vera, sagði Olgeir.