Valur sigraði ÍBV
Valur og ÍBV mættust í Deildarbikarnum í dag eða Flugfélags Íslands bikarnum þar sem Valur sigraði með þriggja marka mun 30-27. Valur byrjaði leikinn mun betur og eftir sautján mínútna leik var staðan 9-2 fyrir Val. �?á tóku leikmenn ÍBV við sér og skoruðu næstu átta mörk frá ÍBV en Valur náði ekki að koma boltanum í netið í ellefu mínútur og staðan orðin 9-10 fyrir ÍBV. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik var staðan í hálfleik 11-11.
Síðari hálfleikur var líkt og sá fyrri, kaflaskiptur. ÍBV náði mest tveggja marka forskoti á 39. mínútu en þá tóku Valskonur aftur öll völd og skoruðu næstu sex mörk og náðu þar með fjögurra marka forskoti og héldu þær forskotinu það sem eftir lifði leiksins.
Mest fór munurinn upp í sex mörk en Eyjakonum tókst aðeins að klóra í bakkann og minnka muninn áður en leiknum lauk. Lokatölur 30-27.
Mörk ÍBV skoruðu þær; Díana Dögg Magnusdóttir 9, Vera Lopes 6, Ester �?skarsdóttir 5, Kristrún �?sk Hlynsdóttir 2, Telma Silva Amado 2, Greta Kavaliuskaite 2 og Sirrý Rúnarsdóttir 1
Erla Rós Sigmarsdóttir varði 13 skot í marki ÍBV.

Nýjustu fréttir

Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Samgöngur og sannindi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.