Vegna breytinga á rekstri Rauðagerðis, frístundahúss
�?að hvarflar að okkur, sem fylgjumst með úr fjarlægð að ráðamenn í Vestamannaeyjum séu alveg grunlausir um hvílíkan auð þeir hafa innan veggja sinna stofnana. Við sem þekkjum vel til mikilvægi félagsmiðstöðvastarfs villjum freista þess að hjálpa fólki að sjá ljósið! Fyrir þá sem ekki vita má segja að félagsmiðstöðvar séu einskonar menntasetur fyrir börn og unglinga. Menntunin sem fer fram í félagsmiðstöðvum er þó ekki formleg eins og tíðkast í grunnskólum landsins þar sem unnið er eftir námskrám og ákveðnum stöðlum, heldur frekar nám sem á sér stað í formi þátttöku og reynslu, einskonar tilviljanakennt eða óformlegt nám sem hlýst af beinni þátttöku einstaklinga í leik og starfi (Hrefna �?órarinsdóttir 2015). Skilgreining Henning Jacobsen (2000) rammar ágætlega inn tilgang og markmið félagsmiðstöðva. Hann segir að félagsmiðstöð sé einhvern veginn mitt á milli þess að vera staður unglinganna þar sem þeir geti komið í afþreyingu af ýmsu tagi sem og vettvangur félagslegra samskipta. Í starfinu skuli vera lögð áhersla á gildi forvarna, sköpunargleði og mismunandi tegundir náms. Í frístundastarfi gefast ótal tækifæri til að vinna með þætti sem efla og styrkja einstaklinginn sem félagsveru og virkan þjóðfélagsþegn. Í starfi félagsmiðstöðva er lögð megináhersla á að vinna með sjálfsmynd, umhyggju, félagsfærni, virkni og þátttöku. Í nútímaþjóð- félagi vega þessir þættir sífellt þyngra og einstaklingar sem hafa góð tök á þessum þáttum standa vel að vígi á fullorðinsárum. Frítíminn skipar stóran sess í lífi barna og unglinga og í gegnum viðfangsefni í frítímanum gefst börnum og unglingum tækifæri til að spegla skoðanir sínar og viðhorf í jafningjahópi á sínum forsendum. Starfsmenn skuli tryggja að starfið sé faglegt og taki mið af uppeldisgildum frítímans. Og þá komum við að hlutverki starfsmanna í félagsmiðstöðvum. Hlutverk starfsmanna er miklu meira en bara að opna húsnæðið og spila borðtennis með unglingunum. Starfsmenn félagsmiðstöðva vinna að því að þjálfa samskipta- og félagsfærni einstaklinga sem sækja félagsmiðstöðina ásamt því að hvetja þá á jákvæðan hátt við mótun sjálfsmyndarinnar og hafa þannig jákvæð áhrif á hegðun þeirra og sálfræðilega velferð. �?rátt fyrir að starfið gangi út á að vera skjólstæðingum sínum innan handar í félagsmiðstöðinni, leiðbeina þeim, örva og virkja, þá eru starfsmenn einnig fyrirmyndir sem unglingarnir líta upp til. Nú til dags er forvarnarstarf ein af undirstöðum félagsmiðstöðvastarfs hér á landi. �?átttaka í skipulögðu félagsstarfi í umsjá fagfólks í öruggu umhverfi hefur mikið forvarnargildi. Með því að bjóða börnum og ungu fólki upp á jákvæð viðfangsefni í frítímanum með sterkum fyrirmyndum aukast líkur á því að þau kjósi heilbrigðan lífstíl og forðist áhættuhegðun. Markmið félagsmiðstöðvarstarfsins á ekki að vera það að fá sem flesta í húsið, heldur sinna vel þeim sem þangað koma. �?ll þekkjum við til einhverra sem ekki ná að blómstra innan hins hefðbunda skólakerfis. Fyrir þessa einstaklinga geta félagsmiðstöðvar skipt sköpum. �?ar eiga nefnilega allir að fá að blómstra á eigin forsendum. �?etta þýðir þó ekki að æskulýðsstarf sé einhvers konar andstæða við hið hefðbundna skólakerfi, þvert á móti vinna þessi tvö kerfi mjög vel saman sem hin tvö sjálfstæðu náms- og uppeldisvettvangar (Guðmundur Ari Sigurjónsson 2015). Til þess að í félagmiðstöðvum þrífist blómlegt starf þarf starfsfólk. Gott og faglegt starfsfólk undir sterkri og faglegri forystu. �?líkt því sem margir halda þarfnast skipulagt tómstundastarf góðs undirbúnings og með því að draga úr rekstarkostnaði félagsmiðstöðva án samráðs við fagaðila er ansi líklegt að þið standið frammi fyrir auknum kostnaði þegar unglingar dagsins í dag ljúka eða jafnvel ljúka ekki skólagöngu sinni. Stærri hópur fer með skerta sjálfsmynd eða lélega sjálfsmynd inn í framtíðina og það boðar ekki gott.

Nýjustu fréttir

ÍBV tapaði gegn Fram á Lambhagavellinum
Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.