Verðlagseftirlit ASÍ: Verðlag í Bónus hækkar um 1,8% frá desember
Innkaup Kerra
Verðlag á dagvöru hækkaði um 0,7% í febrúar frá fyrri mánuði samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ. Vísitalan skoðar þróun á vegnu meðalverði á dagvöru í öllum verslunum.

Sé Nettó undanskilið mælist ögn meiri hækkun á vísitölunni eða um 0,8%, en í Nettó voru afsláttardagar í byrjun síðasta mánaðar. Af öllum verslunum hækkaði verðlag mest í Iceland, sem tók stökk upp á við í febrúar og hækkaði um 10% frá fyrri mánuði.

Sé sérstaklega horft á lágvöruverslanir hefur verðlag hækkað um 1-2% frá desember, og má vænta að áramótahækkanir séu komnar fram að mestu. Verðlag í Krónunni hefur hækkað um 1,1%, í Nettó um 1,5%, í Prís um 1,6% og í Bónus um 1,8% frá desember. Þetta er stór hluti af árshækkun verslananna fjögurra, frá því kjarasamningar voru undirritaðir í mars í fyrra.

Verð enn lægst í Prís
Ekki hefur orðið breyting á röðun verslana. Prís er ódýrasta verslunin í reglulegu eftirliti Verðlagseftirlitsins og hefur verið það frá opnun. Að meðaltali hafa vörur í Bónus verið 4-5% dýrari en í Prís sérhvern mánuð frá opnun verslunarinnar. Verð í Krónunni eru nú 7% hærri en í Prís og í Nettó eru þau 13% hærri.

Súkkulaði, svínakjöt og fuglakjöt hækkar í verði

Sé litið á vöruflokka hækkaði verð á svínakjöti og fuglakjöti um 3% í bæði Bónus og Krónunni milli janúar og febrúar. Til dæmis hækkaði Ódýrt kjúklingalæri án mjaðmabeins í Krónunni úr 1.477kr/kg í 1.599kr/kg (8,3%). Ali kjúklingastrimlar hækkuðu í Bónus úr 1.087kr í 1.147kr (5,5%) og í Prís úr 989kr í 1.079kr (9,4%).
Súkkulaði hækkaði þó mest allra flokka, eða um það bil 4,5% í Bæði Bónus og Krónunni.

Miðað við fyrstu mælingar í mars hefur dagvöruvísitala verðlagseftirlitsins hækkað um rúmlega 0,4% frá febrúar, en um 0,3% sé Nettó undanskilð.  Vöruflokkurinn súkkulaði leiðir hækkanir enn og aftur í bæði Bónus og Krónunni, bæði í febrúar og mars.

Fiskur hækkar einnig nokkuð í Bónus, eða um 2,7%, en aðeins um 0,24% í Krónunni. Til dæmis hækka bleikjuflök úr landeldi um tæp 6% í Bónus, segir í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ.

Nýjustu fréttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.