Fyrsti áfangi viðbyggingar við Íþróttamiðstöðina er að fara af stað, en fyrsta skóflustungan var tekin laugardaginn síðastliðinn. Boðið var upp á léttar veitingar í anddyri Íþróttamiðstöðvar að skóflustungu lokinni og voru myndir og teikningar af hönnun til sýnis.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sagði nokkur orð um framkvæmdina áður en þau Lárus Örn Ágústsson fyrir hönd Hamarsskóla, Borghildur Lára Atladóttir fyrir hönd Barnaskóla, Sóldís Sif Kjartansdóttir iðkandi ÍBV, Tinna Mjöll Frostadóttir iðkandi Fimleikafélagsins Ránar og þeir Alan F. Alison og Hákon Helgi Bjarnason þáverandi og núverandi starfsmenn íþróttamiðstöðvarinnar tóku fyrstu skóflustunguna.
Bæta á búningsaðstöðu, salernisaðstöðu, sérklefa og aðstöðu fyrir starfsfólk í íþróttahúsinu. Unnið hefur verið að tillögum um endurbæturnar og uppbygginguna undanfarna mánuði. Útboð á fyrsta verkþætti er lokið og verður hafist handa við jarðvegsvinu á næstu vikum. Næsti verkþáttur er í undirbúningi til útboðs, segir í frétt á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.
Þessu tengt: Brinks bauð best

Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.