„Virkilega ánægjuleg kvöldstund ár hvert”
IMG 7403
Borðin svignuðu hreinlega undan dýrindis þorramat og drykkjarföngum. Ljósmyndir/vsv.is

Það var heldur betur góð stemning í matsal Vinnslustöðvarinnar á föstudaginn sl.. Þar var hið árlega þorrablót haldið til heiðurs fyrrverandi starfsmönnum VSV og mökum þeirra. Góð mæting var á blótið, á sjöunda tug gesta mætti og átti saman notalega kvöldstund, segir í frétt á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar.

Sigurgeir Brynjar, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar ávarpaði gesti og rakti það sem efst er á baugi í starfsemi fyrirtækisins auk þess að fara yfir hvað framundan er. Því næst hélt Helgi Bernódusson skemmtilegt erindi um sr. Jóhann Hlíðar. Að endingu mætti svo Sæþór Vídó með gítarinn og tók nokkur lög.

Þór Vilhjálmsson, fyrrverandi starfsmannastjóri Vinnslustöðvarinnar hefur komið að skipulagningu blótsins allt frá upphafi. Hann segir í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn að þetta sé skemmtileg hefð og gaman að sjá hve vel sé mætt af eldri félögum.

„Það er svo sniðugt að fólk bíður eftir þessu kvöldi. Fólk sem hefur unnið lengi saman og hittist ekki lengur svo mikið. Þarna eru rifjaðir upp gamlir og góðir tímar. Virkilega ánægjuleg kvöldstund ár hvert,” segir Þór.

Borðin svignuðu hreinlega undan dýrindis þorramat og drykkjarföngum, líkt og sjá má í myndasyrpu á vefsíðu VSV.

Nýjustu fréttir

Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.