Yfir 100 ný opinber störf í Skagafjörð á meðan þeim fækkar í Eyjum
Á meðan opinber störf leka frá Vestmannaeyjum stefnir ríkisstjórnin að því að flytja 90 störf á Norðvesturland auk þess sem 40 ný opinber störf verða til í landshlutanum, langflest þeirra í Skagafirði. �?etta eru tillögur landshlutanefndar fyrir Norðurland vestra og nái þær fram að ganga munu nærri eitt hundrað þessara starfa verða í Skagafirði.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í morgun en meðal hugmynda er að flytja heimahöfn varðskipa Landhelgisgæslunnar til Sauðárkróks og höfuðstöðvar RARIK til Skagafjarðar.
Fréttablaðið hefur nú skýrslu nefndarinnar undir höndum. Í henni eru settar fram 25 tillögur um flutning opinberra starfa í landshlutann sem og hugmyndir um ný opinber störf sem geti orðið til í landshlutanum. �?ess má geta að formaður nefndarinnar er Stefán Vagn Stefánsson, oddviti Framsóknarflokksins í Skagafirði. Skýrslan er nú til meðhöndlunar í forsætisráðuneytinu og bíður afgreiðslu ríkisstjórnar.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.