Yfirburðastaða Elliða Vignissonar í Suðurkjördæmi
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 67,5% líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Elliði leiddi listann í stað Ragnheiðar Elínar. Nú nýlega vann Maskína könnun fyrir stuðningsmenn Elliða Vignissonar þar sem m.a. var spurt út í prófkjör Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi í haust. �?rtak var 529 kjósendur í Suðurkjördæmi.
Í ljós kom að Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum nýtur yfirburðarstuðnings í kjördæminu og slær þar við Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra og núverandi oddvita flokksins í suðurkjördæmi. Rúmlega 61% þeirra sem tóku afstöðu til þessara tveggja einstaklinga vildu heldur að Elliði leiddi lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi en Ragnheiður Elín.
�?á skiptir ekki minna máli að af þeim svarendum sem tóku afstöðu til þeirra tveggja sögðu 67,5% aðspurðra að þau væru líklegri til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef Elliði leiddi listann í stað Ragnheiðar.
Í ljósi þessa afgerandi stuðnings og válegrar stöðu Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu sem og á landsvísu viljum við, stuðningsmenn Elliða Vignissonar hvetja hann eindregið til þess að gefa kost á sér í fyrsta sætið í komandi prófkjöri og leiða Sjálfstæðismenn í kjölfarið til sigurs í kjördæminu.
Stuðningsmenn Elliða Vignissonar bæjarstjóra í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Cornelia Hermansson gengur til liðs við ÍBV
Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Tölum saman í FÍV á morgun
Útflutningur eldisafurða kominn í tæpan 51 milljarð
Sigurbergur ráðinn tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.