Herjólfi seinkar vegna bilunar

Áætlun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs seinkar í dag vegna bilunar, heimildir www.eyjar.net gefa til kynna að um minniháttar bilun sé að ræða í annari aðalvéla Herjólfs og að Herjólfur hafi siglt milli lands og eyja í gær á mun lengri tíma en vant er sökum þessara bilunar.

Siglt verður allar ferðir milli lands og eyja í dag og er skipið nú á leið til Þorlákshafnar og er gert ráð fyrir því að Herjólfur komi þangað um 12:30.

Afgreiðsla Herjólfs gefur upplýsingar um ferðir skipsins í síma 481-2800 til klukkan 16:00 og lengur ef að mikil töf verður á ferðum skipsins.

Nýjustu fréttir

34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.