2 mikilvægir leikir um helgina
Created by PhotoWatermark Professional
Created by PhotoWatermark Professional

Meistaraflokkur er að fara spila 2 hörku leiki á heimavelli um helgina. Á föstudaginn kl.20 er þriðja umferð í 2.deildinni og eiga okkar menn leik við Glóa. Eru Glóamenn upprunalega frá Siglufirði og nokkrir leikmanna ættaðir frá Sauðárkróki en þeir eru með æfingar og leiki í Reykjavík. Hefst þessi leikur eins og áður sagði kl.20:00 og er hann á morgun föstudag, í gamla salnum!

Á sunnudaginn er hinsvegar bikarleikur og er það við Hamar b frá Hveragerði. Verður þetta án efa spennandi leikur og hefst hann kl. 15:00 á slaginu. Ef okkar menn vinna þennn leik þá mætum við Keflavík, besta liðið á landinu í dag í 32 liða úrslitum og myndi sá leikur einnig vera í eyjum á sunnudaginn 25.nóv kl.15:00.. En fyrst verðum við að vinna Hamar b til þess að þetta gerist.

Þannig að nú er um að gera að mæta uppí íþróttahús um helgina og styðja okkar menn til sigurs í báðum leikjunum! Viljum við endilega fá alla yngri flokka leikmenn til þess að mæta á leikina og vera í búningnum sínum!

Áfram ÍBV
 

Nýjustu fréttir

Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.