Virðum eldra fólk að verðleikum!
19. september, 2021

Virðing er það fyrsta sem mér dettur í hug þegar við tölum um fólkið okkar sem er orðið fullorðið og lagði grunninn að því samfélagi sem við búum við í dag.

Alveg frá því að ég steig mín fyrstu skerf sem trillusjómaður og horfði á hvernig þeir eldri báru sig að og lærði bæði meðferð veiðarfæra og  á miðin í kring um Vestmanneyjar, þá hef ég alltaf litið upp til manna sem þekktu þetta eins og lófann á sér. Margir eru farnir en lifa þó í minningunni.

Það er eitt að horfa af virðingu og aðdáun á þá sem á undan hafa gengið. Hin hliðin er sú sem því miður blasir við okkur í íslensku samfélagi í dag og er ein af mörgum ástæðum fyrir því að ég ákvað að taka þátt í framboði með Flokki fólksins. Að undanförnu hef ég bæði heyrt og lesið af frásögnum hjá eldri borgurum, sem lifa nánast á hungurmörkunum, og þegar maður horfir á þessar hörmungar bætur, sem allt of margir þurfa að lifa á í dag, þá einfaldlega stendur mér ekki á sama. Fólk sem þarf að lifa kannski eitt á kannski rétt liðlega 200 þúsund krónum í landi þar sem þeir hæst launuðu greiða sér tugi milljóna í mánaðarlaun og maður eiginlega skilur ekki hvernig stendur á þessu.

Dæmd til sárrar fátæktar

Að undanförnu hef ég líka heyrt í fólki, sem er við það að detta út af vinnumarkaði og kvíðir fyrir því að þurfa á lifa á strípuðum bótum. Og svo eru líka þeir sem hafa kannski lungann af ævinni lifað sem öryrkjar og eiga kannski engin eða lítil lífeyrisréttindi. Einnig fólk sem var út af t.d. uppeldi barna heimavinnandi, meðan fyrirvinnan var kannski úti á sjó og svo skyndilega fellur fyrirvinnan  frá og eftir situr húsmóðirin með aðeins rétt á 80% af lífeyrissjóðsgreiðslum fyrirvinnunnar og aðeins í 1,5 ár. Og hvað svo? Dæmd til sárrar fátæktar. En þessu ætlum við í Flokki fólksins að breyta þannig að makinn erfi full lífeyrisréttindi þess sem fellur frá.

Við réttlætis fyrir alla í ríku landi!

En svo er aftur öll þessi elli- og hjúkrunarheimili þar sem, í sumum tilvikum, launin eru svo lág að aðeins fæst erlent vinnuafl sem jafnvel skilur ekki orð í íslensku. Einu gildir hve þetta erlenda fólk vill vinna vel ef íbúarnir eiga  mjög erfitt  að tala við það, eða gera sig skiljanlega um hvað ami að. Við erfiðleika þessara vistmanna bætist svo þetta svokallaða dagpeninga fyrirkomulag, sem er fyrir mér alveg óskiljanlegt. Efri árin eiga hvorki að vera fátæktargildra né kvíðaefni í því auðuga landi sem Ísland er.

Nú á ég aðeins liðlega 3 ár í sextugt og ég neita því ekki að ég er aðeins farinn að kvíða því að verða fullorðinn. En þannig á það ekki að vera. Það er ekkert svo slæmt að ekki sé hægt að bæta það.

Höfum það öll í huga, að sem betur fer verðum við flest öll einhvern tímann fullorðin og það eina sem við þurfum að gera til þess að tryggja afkomu okkar á fullorðinsárum er að kjósa þann flokk sem berst raunverulega fyrir okkur.

Gerum efri árin að gæðaárum. Setjum x við F!

Georg Eiður Arnarson

 

Höfundur situr í 2. sæti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum.
 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
1. maí blað Drífanda
1. maí blað Drífanda

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst