Þessar upplýsingar skilja alla kristna menn eftir sem einfeldninga er trúa á staðlausa stafi því allan tímann var bara verið að fjalla um endurris sólarinnar á himni. Merkilegt að þessi uppristrú á sólinni skuli hafa orðið til í þeim löndum þar sem skammdegis gætir ekki og varla sjónarmunur á sólarhæð hvort er um að ræða “vetrar- eða sumarsólstöður”.
En Pétur postuli tilkynnir okkur að hann hafi verið sjónarvottur að hátign Jesú Krist. En hann er þá bara lygalaupur því hver trúir ekki Fréttablaðinu og Sigurði Hólm?
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um fleirri atriði frásögunnar því þessar gömlu sögur eru svo skotheldar að við getum pakkað Biblíunni niður í jólapakka og sleppt því að taka hann upp!
En sögurnar sem Fréttablaðið tilgreinir um Hórus, Mítra, Kristna og Isis eru gamlar. Hvað ætli handrit þessara sagna séu gömul? Frá því um 1000 e.kr. Ef þau styddu Biblíuna þá væri þeim algerlega hafnað að kröfu Sigurðar Hólm og félaga og enganvegin tekin til greina sem rök í málinu vegna tímalengdar frá því atburðirnir áttu að eiga sér stað og þar til þeir voru færðir í letur. Kristur hafði sjónarvotta, sem auðvitað er ekkert marktakandi á, því þeir voru trúaðir!
Svo eru fleirri atriði sem eru ekki nefnd til sögunnar. Allir þessir “guðir” dóu. En sá einhver upprisu þeirra? Eru grafir þeirra ekki enn uppteknar? Þeir eru bara sólin skínandi í veldi sínu sem býður ekki uppá skammdegi eða hugmyndafræði forn-norrænna þjóða sem fundu fyrir skammdegi og löngum dimmum nóttum.
En þetta með Jesú. Hann fellur inní gömlu sögurnar um Hórus, Mítra, Krishna og hvað þeir hétu nú allir. En Kristur dó og var grafinn. En eru þá menn að segja allir í einum kór að hann reis upp, eins og sólin í byrjun nýs dags? Amen, það er mergur málsins. Hann skildi meira að segja eftir sig líkklæðin. Pétur, þið vitið- lygalaupurinn – var sjónarvottur að hátign hans “stóð upp og hljóp til grafarinnar, skyggndist inn og sá þar líkklæðin ein” (Lúk.24:12). Það þarf nú ekki að taka það fram að hann hafði líkklæðin með sér. Og þau eru enn til geymd í Tórínó á Ítalíu.
Svo öll þessi rök um að Jesús hafi verið aðeins stjörnumerkjafræði í útgáfu kristninnar verður enn undarlegra þegar “Súperstjarnan” fór úr líkklæðunum og skildi eftir á þeim innbrennda mynd svo að hver sem trúir ekki sjónarvottunum eða handritahöfundum að upprisu hans megi sjá klæðin sem bera sömu sár og handritin segja og sjónarvottarnir greindu frá. Líkklæðin hafa nokkuð heillega sögu og til eru málverk af þeim frá því fyrir 900 e.kr. Og þyrnikórónan sem kristur bar var sko ekki tengd dýrahring stjörnuspekinnar heldur niðurlægjandi krýning rómverskra hermanna til að smána þann sem seinna skildi eftir sig líkklæðin. Þessi er sá sem hefur sko skilið alla eftir í forundran. Þeir vantrúuðu eiga eftir að útskýra margt sem skilningur þeirra nær ekki. Það er ekki nóg að hafna gömlum rökum og órækum staðfestingum. Það þarf að viðurkenna vandann að skynsemi okkar skilur ekki allt og ekki Guð.
Ef líkklæðin eru aðeins frá því um 1260 – 1350 e.kr. eins og C14 aldursgreiningarnar hafa greint frá þá eru egypskar múmíur ekki eldri en frá árinum 215 e.kr eins og samskonar C14 mælingar sýna jafnvel þó svo að múmíurnar voru lagðar til hinstu hvílu um 1500 f.kr. Það er nefnilega cellulósa hjúpur af völdum baktería sem hefur hjúpast um þræði efnisins og ruglar aldursgreininguna.
Niðurstaða:
Sagan um Jesú Krist er fullsönnuð upp að 99% og við þurfum að trúa þessu 1 prósendi sem eftir er. Svo örugg er vitneskjan um upprisu frá dauðum og aðgang að Guði almáttugum vegna trúarinnar á Jesúm Krist.
Stundum sjáum við hvað sagnfræðin er takmörkuð. T.d. varð sólin almyrk í 3 klst. föstudaginn langa þegar Biblían segir að Jesús hafi gefið upp andann? Þá hefur orðið almyrkt um alla jörð. Eða varð bara myrkur í Jerúsalem? Hvað segja fornar bækur?
Sagnfræðingurinn Will Durant segir í bók sinni um Rómaveldið (síðara bindið. ég gríp niður í bls 243)
“Nær miðri fyrstu öld staðhæfði heiðinn þrætumaður að Thallus hét að myrkrið sem varð við dauða Krists hefði verið náttúrulegt fyrirbæri. Frá þessu segir í ritkorni einu eftir Júlíus Africanus.”
Ef Jesús Kristur varð aðeins þjóðsagnarpersóna þá segir Will Durant þetta: (bls 243)
En ef við viljum neita tilveru Krists og gera hann að þjóðsagnarpersónu þá hefur sú persóna verið búin til af einni kynslóð og verður það að teljast einkar ósennilegt.”
Svo vil ég benda hinum sagnfræðisinnuðu gagnrýnendum á að þegar fjallað um forna sögu trúarinnar og segja “sagnfræðingar nefna lítið sem ekki neitt um þau mál”. Skoðið hvaða upplýsingar sagnfræðingar samtímans segja um trúarsöfnuði og prédikara samtímans. Hvaða sagnfræðingar hafa fylgst grant með og greina frá á hlutlausan hátt?
Fjarlægð sagnfræðinganna liggur nær skilningi okkar en við höldum. Þeir rituðu það sem þeim var “borgað” fyrir. Sá sem greiddi launin réð umfjöllunarefninu. Og postulinn Páll sagði að hann væri “öreigi en ætti þó allt”. Lýsing hans á kjörum sínum bendir okkur á að þeir sem fylgdu Jesú Kristi að málum bólgnuðu ekki út af verðbréfum eða býlífi í konungshöllum. Þeir voru álitnir hættulegir og best væri að slíkir menn héldu sig til hlés- að loka þá inni. En fangelsin gátu ekki haldið þeim og lygin ekki kæft þá – þó svo að lygin standi umkringd “Baugsveldinu” á spjöldum Fréttablaðsins þá viti alþjóð að upplýsinar sjónarvotta Biblíunnar um fæðingu, dauða og upprisu Jesú er öruggari vitneskja en það sem Sigurður Hólm matar Fréttablaðið á og komið eru úr “Zeitgeist”.
Jesús Kristur fæddist af mey, flúði til Egyptalands, bjó í Nasaret, var píndur af Pontíusi Pílatusi, krossfestur, dáinn, grafinn og reis (aftur) upp á þriðja degi samkvæmt ritningunum. En ekki Fréttablaðinu.
Til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf! Dýrð sé Guði – þvílíkur boðskapur!
Gleðileg jól
Snorri í Betel “