Betra skip
13. nóvember, 2007

Á dauða mínum átti ég frekar von en að ég yrði áhugamaður um hönnun á skipum og ferjum. Svo er nú hinsvegar komið að ég hef orðið nokkuð gaman af þessum skipa pælingum.  Auðvitað er ég eins langt frá því og hægt er að vera sérfræðingur á því sviði, reyndar þekki ég lítið til annars en að vera sjóveikur farþegi.  Hinsvegar er ég svo lánsamur að hafa gott aðgegni að þeim sem hafa sérfræðiþekkinguna, bæði í mínum vinahópi, fjölskyldu og innan Siglingastofnunar. 

Eitt af því sem hvað mest hefur verið rætt við hönnun á nýjum Herjólfi sem sigla á í Land-Eyjahöfn er að það fari sem allra best með farþega.  Sigling er margra mati ekki þægilegur ferðamáti og það háir okkur Eyjamönnum þegar gestir okkar (eða við sjálf) verðum sjóveik.  Sjóveiki er “náttúruleg viðbrögð heilbrigðs líkama við óeðlilegum aðstæðum”.  Þótt ýmis húsráð séu góðra gjalda verð svo sem að binda trefil fast um magann á sér, taka inn Pektólín, vera með segularmband og fleira þá stendur þetta og fellur með því að draga úr þessum óeðlilegu aðstæðum (veltunni og stampinu).

Í þeim tilgangi að bæta líðan farþega og auka öryggi sjófarenda hafa Norðmenn farið þá leið að hanna nýtt stefni á skip sem sigla við erfiðar aðstæður, svo kallað X-BOW stefni.

Hönnun þessi hefur fært viðkomandi hönnuði (Øyvind Karnsvag) og fyrirtækinu (Ulstein) fjölmargar viðurkenningar og er þess skemmst að minnast þegar skipið (The Bourbon Orca) var tilnefnt skip ársins.  Ekki einungis þykir það fara langtum betur með áhöfn, farm og farþega heldur brennir það minni olíu og nær meiri hraða en skip með hefðbundið stefni.

 Reyndar er hér ekki verið að finna upp hjólið því hugmynd þessi er dregin af stefni á Kvalsund knerrinu sem fannst í uppgreftri í Sunnmörre í Noregi.  Merkilegt hvað víkingarnir hafa snemma verið komnir með lag á því að hanna skip til siglinga á erfiðum leiðum en talið er að skipið hafi verið smíðað um árið 900.

Myndbandið sem er “linkað” hér fyrir neðan sýnir þegar slíkt skip siglir fram úr sambærilegu skipi með hefðbundið stefni.  Athyglisvert er að grænaskipið með X-BOW stefnið er að sigla á 13 mílna hraða en það rauða er að sigla á 8 mílna hraða.  Mér sem leikmanni sýnist ekki fara á milli mála hvað X-BOW skipið fer betur í ölduna, jafnvel þótt það sé á svona mikið meiri hraða (það er í raun að sigla framúr).  Gaman væri að vita hvað þeim sem þekkja til þykir um þetta.

Sjá: Ulstein X-bow

ps. Vegna reynslu af umfjöllun um nýjan Herjólf sem sigla á í Land-Eyjahöfn er rétt að taka skýrt fram að þetta skip sem hér er sýnt er ekki væntanleg ferja.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

Nýjar fréttir

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.