Börn og foreldrar barna á Kirkjugerði koma vel út í könnun um öryggi barna í bílum árið 2007.

Undanfarin 12 ár hefur verið gerð könnun á notkun öryggisbúnaðar barna í bílum við leikskóla víða um land.  Könnunin var gerð í apríl og mars í vor við 58 leikskóla í 32 sveitarfélögum og var framkvæmdin í höndum Umferðarstofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjörgu og Sjóvá-Forvarnarhúsi. 

Könnunin gekk út á að athuga hvort börn á leikskólaaldri eru með fullnægjandi öryggisbúnað, þ.e. í bílstól eða á bílapúði, í öryggisbelti eingöngu eða alveg laus.

Það er skemmst frá því að segja að Kirkjugerði var í 25.sæti af 58 leikskólum og Vestmannaeyjar í 10.sæti af 32 sveitarfélögum.

Ekkert barn í Vestmannaeyjum á leikskólaaldri var laust í bíl þessa umræddu daga sem könnunin var gerð, 12% voru eingöngu í bílbeltum en 88% foreldra voru með börn sín í fullnægjandi öryggisbúnaði.

Foreldrar og aðrir mega vera stolt af þessari útkomu, en betur má ef duga skal og við setjum markið á að öll börn verði í bílstólum/á bílpúða með beltin rétt spennt í næstu könunn.

Þegar þessi könnun var fyrst gerð fyrir réttum 12 árum síðan voru 32% barna laus í bílum. Í dag, 2007, voru 4% barna laus í bílum, þannig að árangurinn er viðunandi.

Árið 2007 voru börn við 5 leikskóla með 100% réttan öryggisbúnað og í einu sveitarfélagi.

Guðrún Helga Bjarnadóttir

Leikskólafulltrúi

Heimildir:

Umferðarstofa, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Sjóvá-Forvarnarhúsið 24.sept. 2007

Nýjustu fréttir

„Þær halda utan um hjartað í Hljómey“ 
Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.