Undarlegt hefur verið að fylgjast með framgangi mála varðandi væntanlegar siglingar í nýja Landeyjahöfn á komandi sumri. Framganga samgönguyfirvalda hefur óneitanlega slegið aðeins á þær miklu væntingar sem gerðar hafa verið til þessarar umbreytingar í samgöngumálum Vestmannaeyja. Samgönguyfirvöld hafa slegið á hendur heimamanna um aðkomu að þessu mikilvæga hagsmunamáli og á laun virðist samningur við Eimskip vera í höfn. Ljóst er því að ýmsar spurningar vakna um gang mála.