Nú er ljóst hvernig sumaráætlun Herjólfs verður en skipið mun sigla í Landeyjahöfn frá og með 1. júlí næstkomandi. Á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst verða farnar 32 ferðir á viku. Þannig verða farnar fjórar ferðir mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga, fyrsta ferð 7.30 frá Eyjum, svo 10.30, 17.00 og 20.00. Síðasta ferð frá Landeyjahöfn verður svo farin 21.30. Fimmtudaga og föstudaga verða fimm ferðir, fyrsta ferð 7.30, 10.30, 14.00, 17.00 og 20.00. Síðasta ferð er svo farin frá Landeyjahöfn 21.30.