Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék í fyrradag með varaliði enska knattspyrnuliðsins Reading eftir að hafa verið frá vegna nárameiðsla í tvær vikur. Gunnar fór vel af stað en hann skoraði mark, krækti í vítaspyrnu, sem og í aukaspyrnu sem skorað var úr, þegar Reading lagði Sailsbury að velli, 4:3. Gunnar hefur vegna meiðslanna misst af tækifæri til að vera í aðalliðshópi Reading í undanförnum