Íslandsmót barna haldið í Vestmannaeyjum um helgina
Um helgina var haldið Íslandsmót barnaskólasveita, fyrir börn fædd 1997 og síðar, í Smáralindinni í Reykjavík. Til stóð að senda þrjár sveitir til leiks frá Eyjum en vegna óveðurs sem gekk yfir Eyjarnar á sunnudagsmorguninn, var hætt við að senda börnin með Herjólfi. Hins vegar náðist að smala saman í eina sveit þar sem nokkrir voru þegar komnir upp á land. Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja skipuðu þau Kristófer Gautason, Róbert Aron Eysteinsson, Sigurður Arnar Magnússon og Hafdís Magnúsdóttir en þau kepptu án þess að hafa liðsstjóra. Og krakkarnir gerðu sér lítið fyrir og urðu í öðru sæti.