Alþingi samþykkti á mánudag frumvarp sjávarútvegsráðherra sem meðal annars heimilar veiðar á skötusel gegn gjaldi. Lögin hafa verið mjög umdeild meðal útvegsmanna ekki síst vegna þess að veiðiheimildir í skötusel voru skertar um 500 tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Nú er ráðherra heimilt að úthluta 2000 tonnum á fiskveiðiárinu 2009 til 2010 og einnig 2010 til 2011 gegn gjaldi.