Eins og áður hefur komið fram, verður stórleikur á morgun, laugardag í 1. deild karla þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Eyjamenn eiga harma að hefna eftir ósanngjarnt tap fyrir Selfyssingum þegar liðin mættust síðast í Eyjum þar sem dómarapar leiksins var full mikið áberandi. Til að auka stemmninguna hefur ÍBV ákveðið að allir þeir sem mæta í ÍBV-búningi á leikinn, fái happadrættismiða en vinningar eru stór páskaegg. Fréttatilkynningu ÍBV má lesa hér að neðan.