Á sama tíma og margir landsmenn fylgdust með umfjöllun fréttamiðlanna um skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var fríður hópur fólks að leika sér á torfæruhjólum á nýja hrauninu á Heimaey. Svæðið sem það valdi sér nýtur hverfisverndar samkvæmt Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2002-2014, það er á náttúruminjaskrá auk þess sem það nýtur sérstakrar verndar samkvæmt 37. gr laga um náttúruvernd (lög nr 44/99).