Víðast hvar er lóan talinn vera vorboðinn ljúfi en því er öðruvísi háttað í Vestmannaeyjum. Hér bíða flestir spenntastir eftir því hvenær lundinn sest upp í fjöll en það gerðist einmitt í dag, 13. apríl. Þórarinn Sigurðsson, rafvirki og sérlegur áhugamaður um lundastofninn, sá lunda upp í fjalli síðdegis í dag. Georg Eiður Arnarson, útgerðarmaður og einn mesti lundaveiðimaður Eyjanna hafði sömu sögu að segja en hann segist hafa orðið mjög hissa að sjá lundann svo snemma.