Þó ekkert bendi til þess að flóð í Markarfljóti af völdum gossins hafi valdið skemmdum á Landeyjahöfn eða breytt dýpi út af henni hefur Siglingastofnun gefið út einhverja seinkun á að höfnin verði tekin í notkun. Í frétt frá stofnuninni segir að engar skemmdir hafi orðið á mannvirkjum sem eru í smíðum í Landeyjahöfn. Sama eigi við uppgræðslu lands sem unnið er að í tengslum við höfnina. Nokkurt magn af stórgrýti sem ætlað var í hafnargarðana er enn á lager norðan við þjóðveginn en þrátt fyrir að flætt hafi yfir hann mun hann hafa sloppið.