Enn er óvíst hvar varnarjaxlinn Hermann Hreiðarsson mun leika á næsta tímabili en þrjú félög hafa sýnt honum áhuga. Samningur Hermanns við Portsmouth er að renna út og félagið vill halda honum. Að auki hefur eitt enskt félag og eitt annað félag utan Englands áhuga á Hermanni en þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans við Fótbolta.net í dag.