Á dögunum var dregið í 32-liða úrslitum Poweradebikarkeppninnar í körfubolta. Eyjamenn komust auðveldu leiðina í gegnum 64-liða úrslitin því ÍBV sat hjá. Í 32-liða úrslitum fá Eyjamenn hins vegar Þór frá Akureyri í heimsókn en Þórsarar eru sem stendur í neðsta sæti 1. deildarinnar. Áætlað er að 32-liða úrslit fari fram dagana 9.-12. desember.