Finnur Ólafsson, knattspyrnumaður og knattspyrnudeild ÍBV hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem fram kemur að viðskilnaður Finns við félagið sé unnin í sátt og samráði. Finnur fór þess á leit við félagið að fá leyfi til að ræða við félög á höfuðborgarsvæðinu vegna fjölskylduaðstæðna en Finnur vill koma á framfæri þakklæti til stuðningsmanna ÍBV, leikmanna og stjórnar fyrir skemmtilegan tíma í Eyjum. Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér að neðan.