ÍBV-íþróttafélag hefur ákveðið að ráðast í byggingu á nýrri stúku við Hásteinsvöll. Stúkan hefur tekið nokkrum breytingum frá þeirri hugmynd sem félagið kynnti í haust. Henni er skipt í fimm bil og á að byggja þrjú í fyrsta áfanga. Kostnaður er um 46 milljónir en ÍBV-íþróttafélag byggir stúkuna með framlagi fyrirtækja, Vestmannaeyjabæjar og Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ). Með því er tryggt að ÍBV fái keppnisrétt á Hásteinsvelli næsta sumar.